„Liège, Belgíu,“ Líahóna, jan. 2025
Kirkjan er hér
Liège, Belgíu
Hið endurreista fagnaðarerindi Jesú Krists barst líklega fyrst til Belgíu þegar Mischa Markow, einn af Síðari daga heilögum frá Tyrklandi, hóf að kenna Esselman-fjölskyldunni árið 1888. Eftir að þau höfðu skírst, hófu trúboðar í Sviss og Þýskalandi að þjóna í Belgíu. Á tveimur mánuðum gengu 80 manns í kirkjuna og söfnuðir voru skipulagðir í Liège, Brussel og Antwerpen. Í Belgíu í dag hefur Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu:
-
6.600 meðlimi (hér um bil)
-
2 stikur (11 deildir, 2 greinar)
-
1 musteri (tilkynnt 2021, fyrirhugað að byggja í Brussel)
Blessanir ritningarnáms
Karen Wery í Namur-deildinni segir um fjölskyldu sína: „Við lærum ritningarnar saman og miðlum hvert öðru hugsunum okkar og innblæstri. Við notum ritningarnar, en einnig myndbönd og önnur úrræði, eins og tímaritið Barnavin, til að hjálpa börnum okkar að skilja betur kenninguna. Stærstu vaxtaráhrif einingar okkar er einingarvöxtur í húsinu okkar.“