2025
Minnast ástæðu þess að ég lifi eftir fagnaðarerindinu
Janúar 2025


„Minnast ástæðu þess að ég lifi eftir fagnaðarerindinu,“ Líahóna, jan. 2025.

Ungt fullorðið fólk

Minnast ástæðu þess að ég lifi eftir fagnaðarerindinu

Að minna mig á „ástæðurnar“ mínar er drifkraftur minn til að nálgast frelsarann og fylgja andlegum markmiðum mínum eftir.

ung kona á bæn

Líf mitt virðist stundum vera ringulreið, en ég nýt huggunarinnar sem ég finn þegar ég geng inn í kapellu. Það er ein af ástæðum þess að ég nýt þess að fara í kirkju!

Þegar ég minnist þess sem ég elska við fagnaðarerindið – eins og t.d. að finna fyrir heilögum anda – finn ég aukinn innblástur til að fylgja andlegum venjum mínum eftir, eins og að fara í musterið, lesa ritningarnar og biðja til himnesks föður.

Vegna þess að lífið getur verið annasamt, getur verið auðvelt að gleyma þessum einföldu hlutum sem við elskum. En að minna mig reglubundið á ástæðurnar fyrir því að ég lifi eftir og elska fagnaðarerindi Jesú Krists, hjálpar mér að endurnýja andleg markmið mín sem færa mig nær honum og himneskum föður.

Setja ný andleg markmið

Í upphafi hvers árs finnst mér gott að endurmeta andleg markmið mín með því að skrifa hjá mér nýársheitin mín. Ef þið eruð líka að endurmeta ykkur sjálf að einhverju leyti og íhugið hvernig þið viljið bæta samband ykkar við Krist á þessu nýja ári, spyrjið ykkur þá þessarar spurningar:

„Af hverju elska ég fagnaðarerindi Jesú Krists?“

Systir Ann M. Dibb, fyrrverandi annar ráðgjafi í aðalforsætisráði Stúlknafélagsins, útskýrði að „elska okkar til fagnaðarerindisins vex er við upplifum kærleika föður okkar á himnum og friðinn sem frelsarinn lofar, er við sýnum honum að við erum fús til að hlýða honum og fylgja“.

Að vita hvers vegna þið elskið fagnaðarerindið, mun hjálpa ykkur að skynja og skilja þann kærleika sem himneskur faðir og Jesús Kristur bera til ykkar. Þetta hugarfar mun líka hjálpa ykkur að vera síður yfirhlaðin þegar þið reynið að setja ykkur andleg markmið og ná þeim.

„Ástæður“ þess að lifa eftir og elska fagnaðarerindi Jesú Krists fela í sér vitneskjuna um að fjölskyldur geti verið saman að eilífu og friðinn sem ég finn eftir einlæga bæn til himnesks föður.

Hver sem „ástæðan“ ykkar er, haldið ykkur þá fast að henni – þá veitir hún ykkur þann andlega skriðþunga sem þið þurfið til að verða betri lærisveinar Jesú Krists.

Lifa eftir „ástæðum“ ykkar

Þegar ég áttaði mig á ástæðum þess að ég lifði eftir fagnaðarerindinu, breyttist það hvernig ég setti mér andleg markmið. Ég hætti að hugsa um það sem ég lét bregðast að gera og fór að einbeita mér meira að því sem ég gat gert. Ég minntist þess að ég lifi eftir fagnaðarerindinu vegna þess að ég elska frelsara minn.

Öldungur Dieter F. Uchtdorf í Tólfpostulasveitinni sagði: „Við þurfum að meðtaka að boðorð Guðs eru ekki bara langur listi góðra hugmynda. … Þau eru grundvölluð á eilífum sannleika og gefin til að færa ‚frið í þessum heimi og eilíft líf í komanda heimi‘ [Kenning og sáttmálar 59:23].“

Að fylgja eftir andlegum markmiðum mínum, minnir mig á hver ég er: guðlegt barn himneskra foreldra. Þessi regla veitir mér hugrekki til að takast á við áhyggjur mínar og veikleika með Jesú Kristi (sjá Eter 12:27).

Russell M. Nelson forseti sagði: „Drottinn væntir ekki fullkomnunar af okkur á þessu stigi okkar eilífu framþróunar. Hann væntir þess þó að við verðum stöðugt hreinni.“ Ég reyni því mitt besta á hverjum degi til að vera í nálægð Jesú Krists og muna hvers vegna ég vel að fylgja honum.