2025
Spyrja spurninga, finna svör: Forskriftin sem Joseph Smith setti
Janúar 2025


„Spyrja spurninga, finna svör: Forskriftin sem Joseph Smith setti,“ Líahóna, jan. 2025.

Kom, fylg mér

Joseph Smith – Saga 1:1–26

Spyrja spurninga, finna svör: Forskriftin sem Joseph Smith setti

Joseph Smith horfir upp í ljósstólpa

Ljósstólpi, eftir Dan Burr, óheimilt að afrita

Árið 1820 hlaut Joseph Smith, hinn forvígði 14 ára gamli bóndadrengur í uppsveitum New York, hina undursamlegu Fyrstu sýn, sem átti eftir að marka nýtt upphaf fyrir allan heiminn. Hér eru þrjár spurningar og svör um að styrkja vitnisburð okkar um Fyrstu sýnina.

Hvað getum við lært af þeirri aðferð Josephs Smith að spyrja spurninga?

Joseph leitaði fyrirgefningar synda sinna og svars við spurningum sínum. Hann vildi vita hvaða kirkju hann ætti að ganga í. Hann sótti mismunandi kirkjur og sneri sér að Biblíunni til að fá svör. Jakobsbréfið 1:5 innblés hann til að spyrja Guð, uppsprettu alls sannleika. (Sjá Joseph Smith – Saga 1:10–13.)

Þegar Joseph bjó sig undir að biðjast fyrir, fann hann stað sem var kyrrlátur og hljóður. Þrátt fyrir þá andstöðu sem Joseph mátti þola í upphafi bænar sinnar, „beitti hann [öllu] afli [sínu] til að ákalla Guð um að bjarga [sér]“ (Joseph Smith–Saga 1:16) og hlaut svar við spurningu sinni (sjá vers 18–19).

Af reynslu Josephs getum við lært ótal margt um trú, bæn og að hljóta svör. Mikilvægt er að hafa í huga að þótt Joseph hafi hlotið svör við fyrstu spurningum sínum í sýn sinni um föðurinn og soninn, þá hélt hann áfram allt sitt líf að leita svara frá Guði í bæn. Þessi svör bárust yfir mörg ár, er hann leitaði, hlýddi og hafði trú á að Guð myndi svara sér.

Russell M. Nelson forseti kenndi: „Spámaðurinn Joseph Smith setti fordæmi fyrir okkur við úrlausn áhyggjuefna okkar“:

  • Leitið ritninganna og annarra áreiðanlegra heimilda.

  • Leitið með einlægu og opnu hjarta.

  • Verið viðbúin að bregðast við þeim svörum sem þið hljótið.

  • Áttið ykkur á að svörin koma á tíma Drottins.

Er Fyrsta sýnin nauðsynleg vitnisburði mínum?

Fyrsta sýnin markaði upphaf endurreisnar fagnaðarerindis Jesú Krists, sem er viðvarandi allt til þessa dags. Á þessum vordegi árið 1820 talaði Guð við Joseph, svaraði bænum hans og veitti leiðsögn sem leiddi til stofnunar kirkju Jesú Krists á jörðu á ný.

Ef við trúum að Drottinn hafi talað við Joseph, þá getum við trúað að hann talar til okkar. Ef við treystum að hann hafi endurreist kirkju sína fyrir tilstilli spámannsins Josephs, getum við treyst að hann haldi áfram að leiða okkur með núverandi spámanni okkar, Russell M. Nelson forseta.

Á sama hátt og Joseph Smith, hljóta lifandi spámenn opinberun kirkjunni til leiðsagnar. Russell M. Nelson forseti sagði: „Ef óviðjafnanleg reynsla Josephs Smith í Lundinum helga kennir okkur eitthvað, þá er það að himnarnir eru opnir og að Guð talar til barna sinna.“

Með vitnisburði um Fyrstu sýnina, styrkist trú okkar á Drottin, kirkju hans og áframhaldandi opinberun sem hann veitir spámönnum okkar og postulum í dag.

Hvernig getum við öðlast vitnisburð um Fyrstu sýnina?

Þótt trúskipti hvers og eins verði mismunandi, þá þurfa allir að lokum staðfestingu heilags anda til þess að öðlast vitnisburð um Fyrstu sýnina og annan sannleika fagnaðarerindisins.

Jeffrey R. Holland forseti, starfandi forseti Tólfpostulasveitarinnar, kenndi: „Viðurkennið spurningar ykkar og áhyggjur af einlægni, en kyndið ætíð með ykkur trúarloga, því allt er þeim mögulegt sem trúa.“

Bænin er lykillinn sem opnar dyr að persónulegum opinberunum varðandi Fyrstu sýnina – og allar aðrar spurningar. Spyrjið Guð. Spyrjið hann hvort Joseph hafi raunverulega séð föðurinn og soninn. Leitið andans, treystið Drottni og haldið áfram að reyna. Þið getið sagt eins og Joseph gerði: „Ég [veit] það, og ég [veit] að Guð [veit það, og ég get ekki] neitað því“ (Joseph Smith – Saga 1:25).