2025
Fallegasti dagurinn
Janúar 2025


Frá Síðari daga heilögum

Fallegasti dagurinn

Drottinn notaði frumbyggjarætur föður míns til að hjálpa honum að sættast við fjölskyldu okkar.

brosandi maður

Faðir minn heitinn, Claude Roy, lést árið 2015, ekki löngu eftir að hann skírðist. Þá höfðum ég og móðir mín og systkini verið meðlimir kirkjunnar um nokkurt skeið, en í áratugi hafði faðir minn alls ekki verið fús til að ganga í hana.

Með tímanum sagði hann: „Hjarta mitt harðnaði og ég varð ergilegur á heimsóknum barna minna og barnabarna og vildi einangra mig frá fjölskyldunni. Spennan jókst á heimili mínu og samband mitt við eiginkonu mína varð stirt.“

Um þetta leyti byrjaði hann að rekja kanadíska frumbyggjaforfeður sína, sem voru afkomendur Mi‘kmaq og Huron-Wendat þjóðanna. Eftir að hafa farið til Mi‘kmaq samfélagsins, nálægt þar sem hann ólst upp, var honum boðið á powwow, athöfn Ameríkufrumbyggja.

Að kvöldi samkomunnar opnaði æðsti höfðinginn faðminn og bað börnin að koma til sín, svo hann gæti blessað þau. Umræðan sem fylgdi í kjölfarið um mikilvægi fjölskyldunnar og afkomenda þeirra sló föður minn eins og eldingu.

Á því augnabliki sagði hann: „Ég sá fjölskyldu mína með útrétta arma til mín meðan ég sneri baki við þeim. Ég fylltist yfirþyrmandi, ólýsanlegri sorg, eins og hjarta mitt væri að bugast. Á því andartaki vissi ég að Drottinn hefði notað orð forfeðra ættbálks míns til að milda hjarta mitt. Ég vissi að ég yrði að snúa mér til himnesks föður og bæta skaðann sem ég hafði valdið fjölskyldu minni.“

Faðir minn tók að sættast við fjölskyldu okkar og bað alla í fjölskyldunni fyrirgefningar. Að fordæmi eiginkonu sinnar og barna, hóf hann að biðja og lesa Mormónsbók. Þar sem hann hafði lesið margar sögur um meginland Ameríku, fann hann að hann laðaðist að Mormónsbók. Sannleiksgildi hennar var staðfest fyrir honum strax.

„Umkringdur fjölskyldu minni lét ég skírast sem meðlimur Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu,“ sagði hann. Þetta var fallegasti dagur lífs míns! Ég ber vitni um áhrifamátt kærleiksríks fordæmis. Eiginkona mín hélt trú sinni í 36 ár og var mér kristilegt fordæmi, þótt ég hefði forherst í hjarta. Síðan breytti ein helgi öllu fyrir mig.“

Saga föður míns minnir okkur á fallegan hátt á að „armur miskunnar frelsarans [er útréttur] til [okkar]“ og að þegar við iðrumst mun hann vissulega taka á móti okkur (sjá Alma 5:33).