2025
Þakklát fyrir að safnast saman
Janúar 2025


„Þakklát fyrir að safnast saman,“ Líahóna, janúar 2025.

Þakklát fyrir að safnast saman

Megum við ætíð vera þakklát fyrir þau forréttindi og það traust sem Drottinn hefur veitt okkur er við söfnumst saman til frelsarans, söfnumst saman með hinum heilögu og söfnumst saman í þjónustu hans.

mynd af frelsaranum

Til þín, Kristur, bljúg vér berum, eftir Jay Bryant Ward, óheimilt að afrita

Í mörg ár átti ég fallegt vasaúr sem eitt sinn tilheyrði afa mínum, Andrew C. Nelson, sem ég hafði aldrei kynnst. Hann dó þegar faðir minn var aðeins 16 ára gamall.

Faðir minn erfði vasaúr Nelsons afa. Þegar ég varð eldri gaf hann mér úrið. Ég mat úrið mikils sem áþreifanlega tengingu við einn af trúföstum áum mínum.

Foreldrar Nelsons afa gengu í kirkjuna, líkt og allir langafar mínir og langömmur, í upprunalandi sínu í Evrópu. Ég verð ævinlega þakklátur fyrir þessa fyrrum brautryðjendur. Vegna trúar þeirra og fórnar til að safnast saman með hinum heilögu, hafa ég og afkomendur mínir notið blessana hins endurreista fagnaðarerindis Jesú Krists.

Úrið hans Nelsons afa minnti mig á þá helgu ábyrgð sem Síðari daga heilagir að safna saman börnum föðurins beggja vegna hulunnar. Úrið hans minnti mig líka á að áar okkar vaka yfir okkur og bíða þess að við berum kennsl á þá og sjáum til þess að helgiathafnir musterisins séu framkvæmdar svo þeim geti verið eilíflega safnað saman í hjörð föðurins.

Safnast saman til frelsarans

Ég og bræður mínir í Æðsta forsætisráðinu og Tólfpostulasveitinni lýsum yfir: „Kirkja þessi er grundvölluð á hinu fullkomna lífi aðalhyrningasteins hennar, Jesú Krists, og altækri friðþægingu hans og bókstaflegri upprisu. … Hann býður okkur öllum að koma til sín og kirkju sinnar, að taka á móti heilögum anda, helgiathöfnum sáluhjálpar og hljóta varanlega gleði.“

Vegna þess að endurreisninni miðar áfram með viðvarandi opinberun, þá verður „jörðin aldrei aftur söm, því Guð mun ‚safna öllu undir eitt höfuð í Kristi‘ (Efesusbréfið 1:10).“

„Öllu“ felur í sér sauði hans. Frelsarinn kallar okkur til að segja skilið við ranglæti heimsins og safnast saman til sín. Hann vill að sauðir hans séu ljós sem skín skært og setji staðal fyrir aðra í heiminum, með því að endurspegla hvernig sannir lærisveinar lifa, þar á meðal hvernig þeir upplifa sanna gleði er þeir beina lífi sínu að frelsaranum.

Við söfnumst saman til frelsarans þegar við komum til hans (sjá Matteus 11:28) með því að iðka trú til iðrunar, meðtaka skírn í kirkju hans og taka á móti gjöf heilags anda.

Við söfnumst saman til frelsarans þegar við upplifum þá andlegu lækningu sem hlýst af því að meðtaka sakramentið, vitna um að við séum fús til að taka á okkur nafn hans, hafa hann ávallt í huga og halda boðorð hans (sjá Kenning og sáttmálar 20:77, 79).

Við söfnumst saman til frelsarans þegar við fyllum líf okkar daglega af orðum hans og sannleika, þar með talið kenningum spámanna hans, sjáenda og opinberara.

Við söfnumst saman til frelsarans þegar við þróum hæfni til að hlýða á hann, lifa verðug hinnar lágværu raddar heilags anda.

Við söfnumst saman til frelsarans þegar við styrkjum trú okkar, dýpkum lærisveinshlutverk okkar, líkjum eftir fordæmi hans og reynum dag hvern að verða örlítið betri.

Við söfnumst saman til frelsarans þegar við gerum helga sáttmála og meðtökum helgiathafnir í musterinu.

Við söfnumst saman til frelsarans þegar við af þolinmæði og hugrekki beygjum okkur undir „allt, sem Drottni þóknast á [okkur] að leggja“ (Mósía 3:19).

Að lokum söfnumst við saman til frelsarans þegar við kennum og vitnum um hann, bjóðum fjölskyldum okkar, vinum og samferðafólki að safnast saman með okkur til „ljóss, lífs og vonar heimsins“.

Safnast saman með hinum heilögu

Þegar við söfnumst saman og sameinumst sem meðlimir Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu, göngum við í samfélag og myndum vináttu hvert við annað. Við styðjum, fræðum og uppbyggjum hvert annað. Við keppum að því, eins og frelsarinn bauð, að „[vera] eitt“ (Jóhannes 17:21; sjá einnig Kenning og sáttmálar 38:27) og að „[elska] hvert annað“ (Jóhannes 13:34).

Dallin H. Oaks forseti, fyrsti ráðgjafi í Æðsta forsætisráðinu, kenndi: „Að auki, þá veitir kirkjuástundun okkur styrk og aukningu trúar sem kemur frá samfélagi við aðra trúaða og að tilbiðja saman með þeim sem vinna einnig að því að halda sér á sáttmálsveginum og verða betri lærisveinar Krists.“

Í kirkjunni finnum við andlega hvíld og endurnýjun. Við finnum þar helgiathafnir og prestdæmisvaldið til að framkvæma þær. Við finnum þar endurreistan sannleika, hreina kenningu og persónulega opinberun. Við finnum þar velkomna arma, hughreystandi hjörtu og hvetjandi raddir. Við finnum þar tækifæri til að lifa eftir æðstu boðorðunum tveimur (sjá Markús 12:30–31).

Drottinn hefur varað okkur við því að „óvinirnir hafi sameinast“ (Kenning og sáttmálar 38:12). Til að vernda fjölskyldur okkar og draga úr vaxandi áhrifum Satans, þá verður sameiginleg tilbeiðsla okkar sem heilagra jafnvel enn nauðsynlegri.

„Eining,“ kenndi spámaðurinn Joseph Smith, „er máttur.“

Safnast saman í þjónustu hans

Spámaðurinn Joseph sagði einnig: „Sá dagur kemur brátt er endurreisn allra hluta mun uppfyllast, sem hinir heilögu spámenn hafa spáð fyrir um, já, jafnvel samansöfnun húss Ísraels.“ Einn þeirra sem spáði þessu var Jeremía í Gamla testamentinu:

„Þeir dagar munu því koma, segir Drottinn, að ekki verður lengur sagt: „Svo sannarlega sem Drottinn lifir sem leiddi Ísraelsmenn frá Egyptalandi,“

heldur verður sagt: „Svo sannarlega sem Drottinn lifir sem leiddi Ísraelsmenn frá landinu í norðri og öllum öðrum löndum sem hann hafði hrakið þá til“ (Jeremía 16:14–15).

Spámaðurinn Joseph sagði enn fremur: „Við erum það fólk sem Guð hefur dálæti á og hefur útvalið til að leiða fram dýrð síðari daga … er hinum heilögu Guðs verður safnað saman í eitt frá öllum þjóðum, kynkvíslum, tungum og lýðum.“

Til að koma því til leiðar, „sendi [ég] menn eftir mörgum fiskimönnum, segir Drottinn, þeir eiga að veiða þá. Því næst sendi ég eftir mörgum veiðimönnum. Þeir eiga að veiða þá á hverju fjalli og á hverri hæð og í klettaskorunum“ (Jeremía 16:16).

Bræður og systur, sem sáttmáls-Ísrael á síðari dögum – meðlimir hinnar endurreistu kirkju Jesú Krists – erum við fiskimenn Drottins og veiðimenn. Við erum kölluð til að safna saman hinum kjörnu Drottins frá hverju fjalli, hæð og þorpi. Við erum kölluð til að veita börnum Guðs það tækifæri að verða fullgildir erfingjar alls þess sem hann hefur lofað trúföstum börnum sínum. Það er undursamlegasta þjónusta sem við getum nokkru sinni innt af hendi.

Við uppfyllum þetta guðlega boð með því að safna saman Ísrael beggja vegna hulunnar – miðla öðrum gleðitíðindum endurreisnarinnar, leita látinna áa okkar og framkvæma staðgengilshelgiathafnir fyrir þá í musterinu. Við uppfyllum einnig þetta boð þegar við miðlum elsku frelsarans með þjónustu okkar, fordæmi, vitnisburði og með því að bjóða öðrum að ganga til liðs við okkur.

„Drottinn er að leiða endurreisn fagnaðarerindis síns og kirkju sinnar,“ sagði Henry B. Eyring forseti, annar ráðgjafi í Æðsta forsætisráðinu. „Hann fer fyrir okkur. Hann þekkir framtíðina fullkomlega. Hann býður ykkur til verksins. Hann gengur til liðs við ykkur í því.“

Forréttindi og traust

Hvað kom fyrir vasaúr Nelsons afa? Ég arfleiddi syni mínum að því fyrir nokkrum árum. Á sama hátt og úrið gerði fyrir mig, þá tengir það hann nú við áa hans og minnir hann á skyldur hans við afkomendur sína.

Þannig viðhelst þetta. Sérhver sáttmálskynslóð heldur áfram verki Drottins og gerir sitt til að búa heiminn undir síðari komu Jesú Krists.

Megum við ætíð vera þakklát fyrir þau forréttindi og það traust sem Drottinn hefur veitt okkur er við söfnumst saman til frelsarans, söfnumst saman með hinum heilögu og söfnumst saman í þjónustu hans.