2025
Rigningardagur í útilegu
Desember 2024


„Rigningardagur í útilegu,“ Barnavinur, janúar 2025, 16–17.

Rigningardagur í útilegu

Hvers vegna svaraði himneskur faðir ekki bænum hennar?

Sönn saga frá Bandaríkjunum.

„Leikurinn minn er á morgun, er það ekki?“ spurði Lucy þegar mamma breiddi yfir hana í rúminu.

Mamma kinkaði kolli. „Já! Annað kvöld klukkan sex.“

Lucy gat varla beðið. Hún hafði hlakkað til fyrsta mjúkboltaleiks liðsins í margar vikur. Og í ár voru treyjurnar þeirra bleikar! Hún var svo spennt að það var erfitt að sofna.

Næsta morgun, leit Lucy út um gluggann og gretti sig. Þung grá ský héngu á himninum og pollar voru alls staðar. Það hafði rignt alla nóttina.

Hún kraup til að flytja morgunbænina. „Kæri himneski faðir, viltu hjálpa svo að veðrið verði gott fyrir mjúkboltaleikinn minn í kvöld.“

Lucy hugsaði um leikinn allan skóladaginn. Hún ímyndaði sér sjálfa sig í nýju bleiku treyjunni sinni að teygja sig upp til að ná sigurgripi. En úti var enn rigning og blautt.

Lucy sagði stutta bæn í huga sínum. Himneski faðir, hjálpaðu sólinni að koma brátt fram, svo við getum leikið í kvöld.

Þegar skólabjallan hringdi, greip Lucy bakpokann sinn og hljóp út. Hún gat séð sólina byrja að gægjast út bak við skýin!

En þegar mamma kom til að ná í hana færði hún henni slæmar fréttir. „Leiknum í kvöld er aflýst,“ sagði hún. „Því miður.“

Lucy leit til himins. „Sólin er að koma fram. Kannski hættir rigningin.“

„Ég veit,“ sagði mamma. „En mjúkboltavöllurinn er of blautur eftir allt vatnið. Svo jafnvel þótt það hætti að rigna, þá er hann of blautur og forugur til að leika á. Þau munu fresta leiknum til annars tíma.“

Tárin byrjuðu að flæða í augum Lucy. Hún var svo vonsvikin! Hana langaði virkilega að spila í kvöld. Hvers vegna svaraði himneskur faðir ekki bænum hennar?

Stúlka horfir út um gluggann á grá ský og rigningu

Heima fannst Lucy hún vera grá og geðill eins og regnskýin. Hana langaði ekki að lesa uppáhaldsbókina sína. Þótt mamma eldaði uppáhaldspastað hennar í kvöldmatinn, bragðaðist það ekki eins vel.

Eftir matinn skreið litla systir Lucy, Ellie, upp í kjöltu hennar. „Viltu leika við mig?“ spurði hún.

Lucy andvarpaði. „Já,“ svaraði hún. Þá fékk hún hugmynd. „Við þurfum eitthvað skemmtilegt að gera.“

Hún greip kúst og batt trefil á enda hans til að búa til fána. Síðan safnaði hún öllum systrum sínum saman. Hún hélt fánanum á lofti og sagði: „Velkomin í Rigningardag í útilegu! Það er þangað sem þið farið til að skemmta ykkur þegar þið getið ekki leikið ykkur úti.“

Systur hennar fögnuðu.

„Fyrst,“ sagði Lucy, „skulum við syngja útilegusönginn okkar.“

Stelpurnar flissuðu þegar þær bjuggu til kjánalegt lag og texta með því. Síðan þrömmuðu þær um herbergið með fánann sinn og sungu eins hátt og þær gátu.

„Nú þurfum við að setja upp tjaldið okkar!“ Lucy hjálpaði systrum sínum að safna saman teppum og koddum til að búa til virki. Það féll nokkrum sinnum. En þegar þær löguðu það, hópuðust þær allar saman inni í virkinu til að spila leiki.

Stúlkur sitja í virki úr teppum og púðum

Brátt var kominn háttatími. „Ég vona að það rigni aftur á morgun,“ sagði Liza, systir Lucy. „Ég vil aftur leika Ritningardagur í útilegu!“

„Takk fyrir að leika við systur þínar,“ sagði mamma um leið og hún faðmaði Lucy góða nótt. „Þú bjóst til þitt eigið sólskin úr skýjuðu ástandi. „Ég er stolt af þér.“

Lucy var glöð þegar hún klifraði upp í rúmið. Bænum hennar var ekki svarað eins og hún vildi. En himneskur faðir hafði samt hjálpað henni að finna eitthvað skemmtilegt að gera með fjölskyldunni – og það var alveg jafn skemmtilegt og að vera í bleiku á fyrsta mjúkboltaleiknum hennar.

PDF-saga

Myndskreyting: Apryl Stott