„Farið í kirkju með Ghuka,“ Barnavinur, janúar 2025, 30–31.
Brautryðjendur í öllum löndum
Farið í kirkju með Ghuka
Kelvin hafði aldrei séð kirkju sem þessa áður.
Sönn saga frá Kenía.
Kelvin staflaði glansandi mjólkurflöskunum vandlega í hilluna. Hann hafði nýlega flutt til afa síns og ömmu í þorp utan við borgina. Þau áttu mjólkurbúð og Kelvin naut þess að hjálpa.
„Í kvöld ætlum við á viðburð í kirkjunni okkar,“ sagði Ghuka (afi). „Viltu koma með okkur? Það verður skemmtilegt.“
Kelvin naut þess að skemmta sér. „Já,“ svaraði hann. „Ég skal fara með ykkur.“
Eftir að þau lokuðu versluninni, gengu Kelvin og afi hans og amma til viðburðarins. Þau gengu fram hjá öðrum verslunum sem seldu vefnað, ávexti og pottaplöntur. Eftir nokkra stund komu þau til kirkjunnar.
Kelvin varð stóreygður er hann virti fyrir sér þessa fallegu byggingu. Hann hafði aldrei séð kirkju sem þessa áður. Flestar kirkjur voru með kross efst, en ekki þessi.
Amma og afi Kelvins kynntu hann fyrir fullt af góðu fólki. Þau borðuðu góðan mat og fóru í leiki.
En Kelvin var forvitinn. Hann gekk því um ganga kirkjunnar. Hann sá málverk af Jesú Kristi. Hann gekk síðan inn í kennslustofu og tók eftir ljósmyndum á veggnum.
Hvaða fólk er þetta? velti Kelvin fyrir sér.
Eftir að hann yfirgaf herbergið, sá hann tvo unga menn í ganginum. Þeir voru klæddir hvítum skyrtum með bindi. „Hæ,“ sagði annar þeirra. „Við erum trúboðar. Hvað heitir þú?“
Kelvin kynnti sig. Hann spurði síðan: „Hver er maðurinn á myndinni?“ Hann benti aftur fyrir sig á eina myndina í herberginu.
„Þetta er spámaðurinn,“ sagði hinn trúboðinn. „Veistu hvað spámaður er?“
Kelvin brosti og hristi höfuðið.
„Spámaður er sendiboði frá Guði,“ sagði trúboðinn. Hann kennir okkur það sem Guð vill að við vitum.
Þegar Kelvin gekk heim með ömmu sinni og afa þetta kvöld, hélt hann á eintaki af Mormónsbók sem trúboðarnir höfðu gefið honum. Hann var spenntur að læra meira um spámenn og þessa nýju kirkju.
„Viltu lesa fyrir okkur?“ spurði Ghuka þegar þau komu heim. Amma og afi Kelvins kunnu ekki að lesa.
„Já!“ Sagði Kelvin. Hann opnaði Mormónsbók og las upphátt. Hann skildi ekki allan textann, en fann eitthvað sérstakt.
Á sunnudeginum gekk Kelvin með ömmu sinni og afa aftur í kirkju. Hann fór í námsbekk fyrir alla krakkana. Hann var kallaður Barnafélag. Hann eignaðist svo marga vini! Hann lærði meira um spámenn og Jesú.
Trúboðarnir komu til að kenna Kelvin meira. Dag einn spurðu þeir hann spurningar. „Vilt þú fylgja fordæmi frelsarans og láta skírast?“
Kevin brosti breitt. „Já!“
Á skírnardegi sínum, steig Kelvin niður í vatnið. Það var kalt. Þegar Kelvin leit í kringum sig, sá hann afa sinn og ömmu, trúboðana og alla nýju vinina sína í kirkjunni. Honum fannst hann svo elskaður!
Með því að velja að fylgja Jesú Kristi, var Kelvin brautryðjandi í fjölskyldu sinni. Hann gat ekki beðið eftir að halda áfram að fylgja honum – og að hjálpa öðrum að fylgja honum líka!
Myndskreyting: Kristin Sorra