„Hvernig eignist þið vini?“ Barnavinur, janúar 2025, 38–39.
Svör frá ykkur
Hvernig eignist þið vini?
Við báðum börn um um allan heim um nokkur ráð til að eignast vini. Hér er það sem þau sögðu.
Ég eignast vini með því að kynna mig og sýna nýju fólki umhverfið. Ég byrja á því að tala við það og leika við það. Ég er góð vinkona með því að hjálpa vinum mínum í erfiðleikum þeirra og hjálpa öðrum að finnast þeir vera meðteknari.
Presley F., 10 ára, Bresku-Kólumbíu, Kanada
Ég mynd segja „hæ“ og bjóða þeim að leika við mig og skemmta sér.
Jett J., 8 ára, Queensland, Ástralíu
Segja fyrst „halló“ og sýna síðan góðvild.
Rachel C., 9 ára, Suður-Cotabato, Filippseyjum
Ég hrósa einlæglega.
Haleigh N., 10 ára, Idaho, Bandaríkjunum
Ég kom með poppkorn til vinkonu minnar. Himneskur faðir vill að við þjónum öðrum til að hjálpa þeim að finna elsku frelsarans.
Allison K., 9 ára, Utah, Bandaríkjunum
Mér finnst gaman að sjá hvernig vinir mínir haga sér í kringum aðra. Lykillinn að því að verða vinur minn er að fylgja góðum stöðlum.
Lesley A., 12 ára, Mið-Hérað, Gana