2025
Trúarorð mín
Desember 2024


„Trúarorð mín,“ Barnavinur, janúar 2025, 6.

Trúarorð mín

Gætið að þessum orðum og orðtökum í þessu tölublaði Barnavinar!

Fyrsta sýnin

Pappírslistaverk af Lundinum helga

Fyrsta sýnin átti sér stað þegar himneskur faðir og Jesús Kristur vitjuðu Joseph Smith eftir bæn hans. Hann vildi vita í hvaða kirkju hann ætti að ganga. Þeir sögðu Joseph að hann myndi hjálpa við að stofna hina sönnu kirkju Jesú Krists á jörðinni.

Lundurinn helgi

Í Lundinum helga hlaut Joseph Smith Fyrstu sýnina. Það var í skóginum nálægt heimili Josephs í Palmyra, New York, Bandaríkjunum.

Endurreisn

Pappírslistaverk af kirkjubyggingu

Að endurreisa eitthvað þýðir að koma því aftur í sama horf og það var áður. Endurreisnin er það sem við köllum er Jesú Kristur færir hið sanna fagnaðarerindi sitt aftur til jarðar. Endurreisnin hófst þegar Joseph Smith hlaut Fyrstu sýnina. Russell M. Nelson forseti hlýtur enn opinberanir fyrir kirkjuna sem spámaður okkar. Það þýðir að endurreisnin er viðvarandi á okkar tíma!

Opinberun

Opinberun er aðferð himnesks föður til að tala til okkar. Við hljótum opinberun frá heilögum anda. Hann getur vakið tilfinningar í hjarta okkar og hugsanir í huga okkar.

PDF-saga

Myndskreyting: Maddie Baker