2025
Endurreisnin hefst
Desember 2024


„Endurreisnin hefst,“ Barnavinur, janúar 2025, 24–25.

Endurreisnin hefst

Lærið hvernig Joseph Smith hlaut leiðsögn við að endurreisa kirkju Jesú Krists.

Teikning af Palmyra, New York
  1. Palmyra, New York (1820): Joseph Smith og fjölskylda hans bjuggu hér. Fjölskyldumeðlimir Josephs sóttu allir mismunandi kirkjur og Joseph vissi ekki í hvaða kirkju hann ætti að ganga. Hann las í Biblíunni: „Ef einhvern yðar brestur visku, þá biðji hann Guð“ (Jakobsbréfið 1:5).

    Teikning af Fyrstu sýninni
  2. Lundurinn helgi (vorið 1820): Joseph Smith baðst fyrir og spurði Guð í hvaða kirkju hann ætti að ganga. Himneskur faðir og Jesús Kristur birtust honum. Þeir sögðu honum að hann ætti ekki að ganga í neina kirknanna. Þeir kölluðu Joseph til að hjálpa við að endurreisa fyllingu fagnaðarerindis Jesú Krists á jörðu.

    Teikning af heimili Joseph Smith
  3. Herbergi Josephs (1823): Engillinn Moróní vitjaði Josephs Smith. Hann sagði Joseph frá gulltöflunum sem höfðu að geyma fagnaðarerindi Jesú Krists. Þegar Moróní talaði, sá Joseph í sýn hvar töflurnar voru grafnar.

    Teikning af englinum Moróní birtast Joseph Smith á Kúmórahæðinni
  4. Kúmórahæðin (1827): Engillinn Moróní afhenti Joseph Smith gulltöflurnar á Kúmórahæðinni. Joseph fékk líka í hendur sérstök verkfæri sem grafin höfðu verið með töflunum. Guð hafði undirbúið þau til að hjálpa honum að þýða töflurnar. Þýddu töflurnar urðu Mormónsbók, svo að öll börn Guðs gætu lesið orð hans.

PDF-saga

Myndskreyting: Adam Koford