„Endurreisnin er fyrir ykkur!“ Barnavinur, janúar 2025, 2–3.
Frá Æðsta forsætisráðinu
Endurreisnin er fyrir ykkur!
Tekið úr „Hlýð þú á hann,“ aðalráðstefna, apr. 2020.
Hvaða þýðingu hefur það fyrir ykkur að fagnaðarerindi Jesú Krists hefur verið endurreist á jörðu?
Það hefur þá þýðingu að þið og fjölskylda ykkur getið verið ævarandi innsigluð! Það þýðir að þegar þið eruð skírð og staðfest sem meðlimir í kirkju Jesú Krists, getur heilagur andi alltaf verið með ykkur. Það þýðir að þið getið verið blessuð með prestdæmiskrafti Guðs er þið gerið og haldið sáttmála við hann.
Joseph Smith, spámaður Guðs, er ykkar spámaður. Það var fyrsti spámaður hinnar endurreistu kirkju. Opinberanir streyma áfram frá Drottni í þessu viðvarandi ferli endurreisnar.
Guð lifir! Jesús er Kristur! Kirkjan hans hefur verið endurreist! Hann og faðir okkar á himnum vaka yfir okkur.
Endurheimta myndina
Farið á bls. 6 og lesið um merkingu endurreisnar. Reynið síðan að endurheimta myndina með því að teikna inn þá hluta sem vantar!
Myndskreyting: Alyssa Petersen