2025
Ritningar á svahílí
Desember 2024


„Ritningar á svahílí,“ Barnavinur, janúar 2025, 36–37.

Ritningar á svahílí

Ég vildi að ég gæti hjálpað á einhvern hátt, hugsaði Jared.

Sönn saga frá Ástralíu.

Jared gekk inn í sunnudagaskólann og settist með bekkjarfélögum sínum. Hann tók eftir dreng sem hann þekkti ekki koma inn og setjast nokkrum stólaröðum í burtu.

Kennari Jareds, bróðir Trudgen, brosti til nemendanna. „Þetta er Emmanuel,“ sagði hann. „Hann og fjölskylda hans voru að flytja til Ástralíu. Þetta er fyrsti sunnudagurinn þeirra í deildinni okkar!“

Jared taldi að það gæti verið erfitt að koma í nýja deild. Hann einsetti sér að verða vinur Emmanuels.

Bróðir Trudgen náði í ritningarnar sínar. „Snúum okkur öll að 3. Nefí,“ sagði hann.

Jared opnaði ritningarnar sínar og leit yfir til Emmanuels. Hann var ekki með neinar ritningar.

Jared brosti breitt til hans og hallaði sér fram. „Hæ, ég heiti Jared,“ sagði hann. „Viltu deila með mér ritningunum mínum?“

Emmanuel brosti á móti. „Ég kann ekki mikla ensku,“ sagði hann. „Afsakaðu.“

„Hvaða tungumál talar þú?“

„Svahílí.“

Jared kunni ekkert á svahílí. Hann og Emmanuel sögðu ekki margt það sem eftir var kennslustundarinnar.

Við kvöldmatarborðið sagði Jared fjölskyldu sinni frá Emmanuel.

„Hann virðist mjög indæll,“ sagði Jared. „En við skiljum hvorn annan ekki mjög vel.“

Mamma kinkaði kolli. „Emmanuel og fjölskylda hans eru að ganga í gegnum mikið núna,“ sagði hún. „Þau þurftu að yfirgefa landið sitt mjög skyndilega vegna þess að slæmir hlutir voru að gerast þar. Þau skildu allt sitt eftir.“

Jared yggldi sig. Hvernig væri að þurfa að flytja að heiman á morgun og flytja til nýs lands? Það væri svo erfitt!

Ég vildi að það væri eitthvað sem ég gæti gert til að hjálpa Emmanuel, hugsaði hann. Hvað gæti það verið?

Jared gat ekki hætt að hugsa um Emmanuel er hann fór í háttinn. Hann settist við skrifborðið sitt með Mormónsbókina sína og las nokkur vers. Það fékk hann alltaf til að líða betur að lesa ritningarnar. Í kvöld minntu þær hann líka á að Emmanuel hefði engar ritningar haft til að lesa. Jared lokaði ritningunum og starði á kápuna. Svo stökk hann upp úr stólnum sínum og flýtti sér út á ganginn.

„Mamma!“ kallaði hann. „Ég held ég viti hvernig ég get hjálpað Emmanuel!“

Næsta sunnudag hlakkaði Jared til þess að sjá Emmanuel. Hann sat með hinum djáknunum fremst í kapellunni og beið með nýja Mormónsbók í fanginu. Trúboðarnir höfðu hjálpað honum að fá þetta sérstaka eintak bara fyrir Emmanuel.

Þegar Emmanuel kom inn í kapelluna með fjölskyldu sinni, brosti Jared og veifaði honum til að koma. Emmanuel virtist ringlaður þegar hann settist við hlið Jareds. Augu hans stækkuðu hins vegar þegar Jared rétti honum Mormónsbókina.

Hendur skiptast á Mormónsbók á svahílí

„Fyrir mig?“ spurði Emmanúel.

Jared kinkaði kolli.

Augu Emmanuels lýstust upp. Hann blaðaði gegnum síðurnar í nýju Mormónsbókinni sinni. „Svahílí,“ sagði hann. Hann brosti til Jareds og faðmaði bókina að brjósti sér. „Takk fyrir!“

Hjarta Jareds varð hlýtt þegar hann brosti á móti. Hann vissi að hann gæti ekki gert allt betra fyrir Emmanuel og þeir gátu enn ekki talað mjög vel saman. En það var allt í lagi. Þeir þurftu ekki að tala sama tungumál til að verða vinir!

PDF-saga

Myndskreyting: Keith Negley