„Kveðja frá Eistlandi!“ Barnavinur, janúar 2025, 8–9.
Kveðja frá Eistlandi!
Eistland er í Norður-Evrópu og liggur að Eystrasalti. Þar búa um ein milljón manns.
Miðnætursólskin
Á sumrin í Eistlandi eru nokkrar vikur með miðnætursólskini. Sólin sest seinna en venjulega og skilur eftir ljós á himninum á nóttunni.
Skógarhús
Helmingur Eistlands er skógi vaxinn! Margs konar dýr búa í skóginum, þar á meðal gaupur, bjórar, úlfar, otrar og villisvín.
Höfuðborgin
Tallinn er höfuðborg Eistlands. Hún er ein elsta borgin í Norður-Evrópu.
Söng- og danshátíð
Þessi hátíð er mikilvægur hluti af eistneskri menningu. Hún er haldin á fimm ára fresti og allt að 100.000 manns hafa sótt hana.
Land eyja
Í Eistland eru meira en 2000 eyjar. Margar þessara eyja eru mjög litlar, þannig að flestir búa á meginlandinu og á stærri eyjunum.
Myndskreyting: Greg Paprocki