2025
Gjöf bænar
Desember 2024


„Gjöf bænar,“ Barnavinur, janúar 2025, 20–21.

Frá leiðtogum okkar

Gjöf bænar

Tekið úr „Biðjið, hann er þar,“ aðalráðstefna, apr. 2024.

Himneskur faðir hefur gefið ykkur afar sérstaka gjöf. Það er gjöf bænar. Bænin getur hjálpað okkur alltaf og alls staðar.

Mig langar að miðla ykkur þremur gjöfum sem þið getið beðist fyrir um.

1. Biðjið þess að vita.

Hvernig getum við vitað að hann er að hlusta, ef við fáum ekki séð himneskan föður þegar við flytjum bænir okkar?

Russell M. Nelson forseti hefur boðið ykkur: „Úthellið hjarta ykkar frammi fyrir himneskum föður. … Leggið síðan við hlustir!“* Þið getið vitað að himneskur faðir heyrir bænir ykkar þegar þið hlustið á það sem þið skynjið í hjarta ykkar og hugsanirnar sem koma í huga ykkar.

2. Biðjið þess að vaxa.

Hvernig viljið þið vaxa? Viljið þið læra eitthvað nýtt eða eignast nýja vini? Þið getið beðið þess að vaxa til að verða líkari Jesú Kristi!

Nýr vinur minn, Jonah, sagði mér frá því að hann hefði oft áhyggjur í skólanum. En þegar hann tók að biðjast fyrir áður en skólinn byrjaði, fann hann frið. Jonah biður þess að geta vaxið dag hvern og það getið þið líka!

3. Biðjið þess að sýna.

Ég bað fyrir fjölskyldu minni þegar ég var ung stúlka. Ég vildi vita hvernig ég gæti hjálpað henni. Himneskur faðir hjálpaði mér að vita að ég gæti sýnt fordæmi um fagnaðarerindi Jesú Krists. Ég gæti gert það!

Gefist ekki upp ef þið biðjið fyrir fjölskyldu ykkar eða öðrum sem elska ykkur! Himneskur faðir mun sýna ykkur hvað þið getið gert. Þegar þið biðjið hann einlæglega um hjálp, mun andi hans leiðbeina ykkur.

Bænirnar mínar

Íhugið þessar spurningar í hvert sinn sem þið biðjist fyrir. Litið síðan í blómið. Athugið hvort þið getið litað alla síðuna!

  • Hvað vil ég vita?

  • Hvernig vil ég vaxa?

  • Hvernig get ég sýnt öðrum elsku himnesks föður?

Blómalitun –Verkefni

Myndskreyting: Jared Beckstrand