2025
Kom, fylg mér – Verkefni
Desember 2024


Kom, fylg mér – Verkefni,“ Barnavinur, janúar 2025, 22–23.

Kom, fylg mérVerkefni

30. desember – 5. janúar: „Endurreisn fyllingar fagnaðarerindis Jesú Krists“

Endurreisn – Púslverkefni

Börn setja saman púsluspil

Sé eitthvað endurreist þarf að setja það saman aftur. Lesið „Endurreisn fyllingar fagnaðarerindis Jesú Krists: Tvö hundruð ára afmælisyfirlýsing til heimsins“ í Gospel Library til að læra meira um það hvernig kirkjan var endurreist. Farið síðan í endurreisnarleik! Finnið eða teiknið mynd og klippið hana í púsl. Skiptist á þrautum við fjölskyldumeðlim og endurreisið myndir hvers annars. Hvers vegna var mikilvægt að Joseph Smith endurreisti fagnaðarerindi Jesú Krists?

6.–12. janúar: Kenning og sáttmálar 1

Myndastyttuleikur

Börn dansa

Himneskur faðir talar til okkar með spámönnum sínum (sjá Kenning og sáttmálar 1:38). Við þurfum bara að hlusta! Æfið ykkur í því að hlusta með því að fara í leik. Einn einstaklingur spilar tónlist og allir dansa meðan tónlistin er spiluð. Þegar tónlistin hættir frjósa allir. Sá sem frýs síðast deilir einni ástæðu þess að hann elskar spámenn. Leikið þar til allir hafa fengið tækifæri til að deila!

13.–19. janúar: Joseph Smith – Saga 1:1–26

Sviðsetning af Fyrstu sýninni

Barn að búa til sviðsetningu

Himneskur faðir og Jesús Kristur birtust Joseph Smith (sjá Joseph Smith–Saga 1:15–20). Við köllum þennan atburð Fyrstu sýnina. Farið á síðu 13 til að búa til ykkar eigin sviðsetningu af Fyrstu sýninni og notið hana síðan til að segja einhverjum öðrum söguna.

20.–26. janúar: Kenning og sáttmálar 2; Joseph Smith – Saga 1:27–65

Ættarsöguskemmtun

Barn teiknar

Þegar við lærum meira um áa okkar, finnum við aukna nálægð þeirra og himnesks föður (sjá Kenning og sáttmálar 2). Biðjið fjölskyldumeðlim að segja ykkur sögu úr eigin lífi eða um einn áa ykkar. Endurskapið síðan söguna sem leikrit eða teikningu!

PDF-saga

Ljósmyndir: Christina Smith