„Á sama hátt og Joseph,“ Barnavinur, janúar 2025, 4–5.
Þægilegur lestur
Á sama hátt og Joseph
Sá Joseph Smith í raun himneskan föður og Jesú Krist?
Sönn saga frá Filippseyjum.
Lhensay skoppaði í sæti sínu við hliðina á mömmu sinni þegar jeppinn þeirra ók í gegnum bæinn. Sunnudagur var uppáhaldsvikudagur Lhensay! Hún elskaði að fara í Barnafélagið og læra um Jesú Krist.
Jeppinn ók upp að stoppistöð þeirra. Mamma hélt í hönd Lhensay þegar þær gengu að kirkjunni.
Eftir sakramentissamkomu, fór Lhensay í Barnafélagið með vinkonu sinni Maríu. Á töflunni var mynd af ungum manni að biðjast fyrir í skóginum.
„Góðan daginn!“ Kennarinn þeirra, systir Cruz, benti á myndina. „Veit einhver hver þetta er?“
„Þetta er Joseph Smith!“ sagði Lhensay.
Systir Cruz brosti. „Já, það er rétt. Og hvað gerði Joseph Smith?“
Lhensay leit aftur á myndina. Hún vissi að Joseph Smith var spámaður, en hún vissi ekki mikið meira.
„Hann var fyrsti spámaður kirkjunnar okkar,“ sagði Maria.
„Rétt aftur!“ sagði systir Cruz. „Þegar Joseph var ungur vissi hann ekki í hvaða kirkju hann ætti að ganga. Hann fór inn í skóg og bað til Guðs til að komast að því hver þeirra væri sönn. Hann bað líka um fyrirgefningu synda sinna. Þegar hann baðst fyrir birtist afar skært ljós. Vitið þið hver var í þessu ljósi?“
Lhensay og hinir í bekknum biðu svarsins.
Systir Cruz setti aðra mynd á töfluna. Þessi sýndi tvo menn standa fyrir ofan Joseph Smith í loftinu. Þeir voru í hvítum kuflum og frá þeim skein skært ljós.
„Himneskur faðir og Jesús Kristur sýndu sig Joseph,“ sagði systir Cruz. „Þeir sögðu honum að hann myndi endurreisa kirkju Jesú. Við köllum það Fyrstu sýnina.“
Lhensay rétti upp höndina með augun galopin. „Var þetta raunverulegt?“ spurði hún.
Systir Cruz kinkaði kolli. „Já, það var það.“
Lhensay varð hlýtt um hjarta. Hún vissi að það sem systir Cruz hafði sagt var satt.
Þetta kvöld hugsaði Lhensay stöðugt um Joseph Smith. „Mamma, hvernig get ég séð himneskan föður og Jesú, eins og Joseph Smith gerði?“ spurði hún.
Mamma faðmaði Lhensay. „Flest okkar munu ekki sjá himneskan föður og Jesú eins og Joseph Smith gerði. Þeir geta samt talað til okkar með hugsunum og tilfinningum frá heilögum anda. Þannig veistu að þeir eru alltaf með þér.“
Lhensay hugsaði um hvernig henni hafði hlýnað um hjartað þegar systir Cruz sagði þeim frá Fyrstu sýninni. Það var heilagur andi að senda henni skilaboð frá himneskum föður og Jesú Kristi! Hún brosti og faðmaði mömmu á móti. Þeir höfðu talað við hana, alveg eins og þeir gerðu við Joseph Smith!
Myndskreyting: Shawna J. C. Tenney