„Fyrsta sýnin,“ Barnavinur, janúar 2025, 26–28.
Sögur úr ritningunum
Fyrsta sýnin
Þið getið lesið þessa frásögn í Joseph Smith – Saga 1:1–20.
Þegar Joseph Smith var ungur, kenndu margar kirkjur mismunandi hluti um Jesú Krist. Joseph vissi ekki í hvaða kirkju hann ætti að ganga.
Dag einn las hann Jakobsbréfið 1:5 í Biblíunni. Þar stóð að ef við þörfnuðumst visku, getum við spurt Guð. Joseph ákvað að gera það.
Á fallegum vordegi fór Joseph út í skóg til að biðja til himnesks föður.
Hann kraup og tók að biðjast fyrir. En þá fann hann myrkur allt í kringum sig. Joseph varð hræddur. Hann bað Guð um hjálp.
Skyndilega sá Joseph skært ljós koma niður af himni. Hann sá himneskan föður og Jesú Krist standa í loftinu. Himneskur faðir sagði nafn Josephs. Hann benti síðan á Jesú Krist og sagði: „Þessi er minn elskaði sonur. Hlýð þú á hann!“
Jesús sagði Joseph að hann ætti ekki að ganga í neina kirknanna.
Joseph myndi hjálpa við að endurreisa fyllingu fagnaðarerindisins á jörðu.
Joseph var ekki lengur ráðvilltur. Hann fylltist gleði! Hann vissi að Guð elskaði sig. Sumir trúðu ekki að hann hefði séð himneskan föður og Jesú Krist, en hann vissi að það var satt.