2024
Ábendingar fyrir fyrstu musterisferðina þína
Nóvember 2024


„Ábendingar fyrir fyrstu musterisferðina þína,“ Barnavinur, nóvember 2024, 38–39.

Ábendingar fyrir fyrstu musterisferðina þína

Í musterinu getum við látið skírast og verið staðfest fyrir fólk sem hefur dáið án þess að hafa fagnaðarerindið. Þetta fólk mun fá tækifæri til að gera sáttmála við Guð og hljóta blessanir hans, alveg eins og þið gerðuð þegar þið voruð skírð og staðfest.

Það sem hafa á með sér

  • Kirkjuföt (vera klædd þeim er farið er í musterið)

  • Musterismeðmæli

  • Hárbursta og hárband (ef þarf)

  • Nöfn ættmenna prentuð úr FamilySearch appinu eða af vefsíðu FamilySearch (valfrjálst)

Það sem gera þarf

Börn fara í musteri

1. Gangið inn í musterið

Sýnið meðmælin ykkar í móttökunni. Þið getið síðan farið í skírnarsalinn. Musterisþjónn mun fá ykkur hvít nærföt, sokka og skírnarsamfesting.

Drengur í skírnarklæðum

2. Skiptið um föt

Skiptið um föt í búningsklefanum. Setjið fatnað ykkar í tóman skáp. Læsið svo skápnum ykkar og festið lykilinn á samfestinginn. Ef þið eruð með sítt hár, bindið það þá aftur. Hafið prentuð nöfn ættmenna hjá ykkur.

Stúlka að lesa ritningar

3. Bíðið lotningarfull

Á meðan þið bíðið eftir að röðin komi að ykkur að skírast, getið þið lesið ritningarnar, beðist fyrir eða ígrundað. Þið getið líka hugsað um fólkið sem þið látið skírast fyrir.

Stúlka gerir musterisskírnir

4. Takið þátt í musterisskírnum

Þegar röðin kemur að ykkur, skuluð þið fá þeim sem við skrifborðið er nöfn ættmenna ykkar. Ef þið hafið engin nöfn, munu þau nota musterisnöfn fyrir ykkur. Stígið varlega ofan í fontinn, þar sem prestdæmishafi mun skíra ykkur fyrir hvern einstakling. Munið að beygja hnén og halda fyrir nefið þegar hann dýfir ykkur ofan í vatnið.

Drengir í kirkjufötum, stúlka staðfest

5. Farið aftur í fötin ykkar

Þegar þið eruð búin, mun einhver fá ykkur handklæði. Þegar þið eruð aftur komin í búningsklefann, getið þið farið í sturtu í einrúmi, skipt aftur í þurru fötin ykkar og greitt ykkur. Verið viss um að setja blautu fötin í körfuna og skilja lykilinn eftir í skápnum.

6. Takið þátt í staðfestingum

Að lokum mun einhver vísa ykkur í herbergi þar sem þið verðið staðfest fyrir þau sem voru skírð.

Sum musteri gætu gert hlutina aðeins öðruvísi. En hvað sem öllu líður, þá verður fólk til að hjálpa ykkur hvert skref leiðarinnar. Munið að musterið er hús Drottins og hann er ánægður að hafa ykkur þar!

PDF

Myndskreyting: Mark Robison