„Jesús Kristur mun koma aftur,“ Barnavinur, nóvember 2024, 2–3.
Ráðstefnuboðskapur frá spámanninum
Jesús Kristur mun koma aftur
Tekið úr „Drottinn Jesús Kristur mun koma aftur,“ Líahóna, nóv. 2024, 121–22.
Frelsarinn gaf ykkur þetta loforð: „Ég mun verða yður til hægri handar og til þeirrar vinstri, og andi minn mun vera í hjörtum yðar og englar mínir umhverfis yður, yður til stuðnings“ (Kenning og sáttmálar 84:88).
Jesús Kristur tók á sig syndir ykkar, sársauka ykkar og sorgir ykkar. Hann mun fyrirgefa ykkur þegar þið iðrist. Hann mun blessa ykkur með því sem þið þurfið.
Í dag ákalla ég ykkur til að hjálpa við samansöfnun hins tvístraða Ísraels og búa heiminn undir síðari komu Drottins. Ég ákalla ykkur til að tala um Krist, vitna um Krist, trúa á Krist og fagna í Kristi! Þetta er leyndardómur gleðiríks lífs.
Það besta er enn í vændum, er við snúum hjörtum okkar og lífi algjörlega að Jesú Kristi.
Vera reiðubúin þegar hann kemur aftur
Nelson forseti bauð okkur að búa okkur undir síðari komu Jesú Krists. Teiknið mynd af því sem þið munið gera til að undirbúa ykkur. Gætið að hugmyndum hér að neðan úr ræðu Nelsons forseta!
Gera og halda sáttmála
Hjálpa við að leiða aðra til Krists
Búa sig undir að fara í musterið
Læra um Jesú Krist og friðþægingu hans