2024
Kom, fylg mér – Verkefni
Nóvember 2024


Kom, fylg mér – Verkefni,“ Barnavinur, nóvember 2024, 28–29.

Kom, fylg mérVerkefni

Fyrir heimiliskvöld eða ritningarnám – eða bara til ánægju!

28. október–3. nóvember

Elskið hvert annað

Fyrir Mormón 1–6

Krakkar að leik

Mormón elskaði Nefítana (sjá Mormón 3:12). Himneskur faðir og Jesús Kristur hafa líka beðið okkur að elska aðra. Standið í hring og lokið augunum. Teljið upp að þremur, opnið svo augun og horfið á einhvern. Ef þið eruð að ná augnsambandi við einhvern, segið þá eitthvað sem ykkur þykir dásamlegt í fari hvors annars og stígið út úr hringnum. Haldið áfram þar til ein manneskja er eftir! Allir segja þá eitthvað sem þeir elska við viðkomandi.

4.–10. nóvember

Kraftaverkahandverk

Fyrir Mormón 7–9

Teiknibúnaður

Þegar við fylgjum Jesú Kristi, þá getur himneskur faðir blessað okkur með kraftaverkum. Lesið Mormón 8:24 og teiknið eitt þeirra kraftaverka sem lýst er í versinu. Meðan þið teiknið, ræðið þá hvaða kraftaverk himneskur faðir hefur gert fyrir fjölskyldu ykkar.

11.–17. nóvember

Steinamálun

Fyrir Eter 1–5

Steinahandverk

Bróðir Jareds bað Drottin að snerta steina, svo að ljós yrði í bátum hans (sjá Eter 3). Safnið steinum utandyra eða klippið hringi úr pappír. Skrifið, teiknið eða málið á steinana ykkar eitthvað sem þið getið gert til að færa öðrum ljós og kærleika.

18.–24. nóvember

Þakklætissöngvar

Fyrir Eter 6–11

Krakkar syngja saman

Þegar bróðir Jareds og fjölskylda hans ferðuðust yfir hafið, sungu þau Drottni lof til að þakka honum fyrir hjálpina (sjá Eter 6:9). Þið getið líka sungið til að þakka Drottni! Veljið eftirlætis söng í Barnasöngbókinni eða á heimasíðu kirkjunnar og syngið hann saman. Hvernig getið þið á annan hátt sýnt himneskum föður að þið séuð þakklát?

PDF

Myndskreyting: Katy Dockrill