„Musterisferð,“ Barnavinur, nóvember 2024, 18–19.
Skemmtisíða
Musterisferð
Velkomin í musterið!
Í musterinu getum við lært um sáluhjálparáætlunina og gert sáttmála við himneskan föður. Í því eru mörg falleg herbergi þar sem við getum fundið frið heilags anda.
Innsiglunarherbergi er þar sem hjón og fjölskyldur eru innsigluð um tíma og eilífð.
Í brúðarherberginu hafa konur sig til áður en þær innsiglast.
Kennsluherbergið er þar sem þið lærið um sáluhjálparáætlunina og gerið helga sáttmála við himneskan föður.
Himneska herbergið hjálpar okkur að íhuga hvernig það verður að búa aftur hjá himneskum föður. Það er staður til að biðjast fyrir, ígrunda og lesa ritningarnar.
Skírnarfonturinn er staður þar sem þið getið skírst fyrir fólk sem hefur dáið. Uxarnir tólf umhverfis fontinn tákna tólf ættkvíslir Ísraels.
Gátlisti musteris
Getið þið fundið þessa hluti í musterinu?
-
ljósakrónu
-
spegil
-
blómavasa
-
uxa við skírnarfont
-
litað gler