„Mormón og gulltöflurnar,“ Barnavinur, nóvember 2024, 26–27.
Sögur úr ritningunum
Mormón og gulltöflurnar
Myndskreyting: Andrew Bosley
Mormón var spámaður. Þegar hann var 10 ára, sagði leiðtogi að nafni Ammaron honum að muna eftir því sem gerðist hjá fólki hans, svo hann gæti síðar skrifað það á gulltöflurnar. Töflurnar voru það sem spámenn Nefíta rituðu á.
Ammaron faldi töflurnar, því margir voru ranglátir. Hann sagði Mormón hvar þær væru að finna. Þegar Mormón varð eldri, fékk hann gulltöflurnar í hendur. Hann verndaði þær og ritaði um fólkið sitt.
Fólkið var enn ranglátt, en Mormón reyndi að kenna því. Hann ritaði líka um frelsarann á töflurnar. Vegna Mormóns, þá getum við lesið orð spámanna í Mormónsbók í dag.
Þótt Mormón hafi verið ungur, þá treysti Drottinn honum. Þið getið líka fylgt Drottni meðan þið eruð ung!