„Ráðstefnupunktar,“ Barnavinur, nóvember 2024, 6.
Ráðstefnupunktar
Flugdrekar og sáttmálar
Oaks forseti talaði um dreng og föður hans fljúgandi flugdreka. Drengurinn spurði hvort þeir gætu klippt á strenginn til að láta flugdrekann fljúga hærra. Faðirinn útskýrði, að ef klippt væri á strenginn myndi flugdrekinn hrapa til jarðar. Strengurinn væri eins og sáttmálarnir sem tengja okkur himneskum föður og Jesú Kristi. Að halda sáttmála okkar, hjálpaði okkur að komast nær þeim.
Þetta kennir mér:
Steindur glergluggi
Öldungur Uchtdorf var skírður fyrir 75 árum! Vitnisburður hans tók að skjóta rótum þegar hann var drengur í Þýskalandi. Hann man enn eftir þeim helgu tilfinningum sem hann upplifði þegar hann horfði á steindan glugga af Jesú Kristi í kapellunni þeirra. Andinn bar vitni í huga hans og hjarta um að Jesús Kristur væri frelsari heimsins.
Þetta kennir mér:
Einblína á Jesú
Öldungur Egbo sagði frá nígeríska karlalandsliðinu í knattspyrnu fyrir Ólympíuleikana 1996. Þeir höfðu ekki mikla peninga eða nutu bestu þjálfunarinnar. En þeir einbeittu sér að markmiði sínu, leiddu hjá sér allar aðrar truflanir og unnu gullið! Þegar við leiðum hjá okkur truflanir heimsins og einblínum á Jesú Krist, munum við líka ná árangri.
Þetta kennir mér:
Spyrja spurninga
Systir Browning sagði að allt fram til ársins 1992 hefðu vísindamenn talið að Plútó markaði ystu mörk sólkerfis okkar. Vísindamenn héldu þó áfram að læra og spyrja spurninga. Nú vitum við að það er svo margt sem uppgötva má handan Plútós! Þegar við höfum spurningar, getum við leitað til himnesks föður. Einlægar spurningar um fagnaðarerindið geta hjálpað okkur að læra og vaxa.
Þetta kennir mér:
Myndskreyting: Josh Talbot