„Bróðir Jareds,“ Barnavinur, nóvember 2024, 24–25.
Lærið um Mormónsbók
Bróðir Jareds
Jaredítarnir smíðuðu vatnshelda báta til að ferðast til fyrirheitna landsins.
Bróðir Jareds var hinsvegar með spurningu. Hvernig gætu þau andað í bátunum? Hann baðst fyrir um hjálp og Drottinn sagði honum að gera göt á bátana til að fá inn súrefni.
Bróðir Jareds hafði aðra spurningu. Hvernig gátu þeir haft ljós? Í þetta sinn spurði Drottinn hvað það væri sem bróðir Jareds vildi að hann gerði svo að Jaredítarnir hefðu ljós.
Bróðir Jareds fékk þá hugmynd. Hann bað Drottin að snerta sextán litla steina. Þegar Drottinn snerti þá, lýstu þeir!
Við getum spurt Drottin spurninga sem við höfum. Hann vill hjálpa okkur að leysa vandamál okkar.
Ritningaráskorun
-
Hvar faldi Ammaron gulltöflurnar svo Mormón gæti fundið þær? (Mormón 1:2–3)
-
Í hverju stóð Drottinn þegar hann sagði Jaredítunum hvert þeir ættu að ferðast? (Eter 2:5)
-
Hvert leiddi Drottinn forfeður Súle? (Eter 7:27)
Ég get lesið Mormónsbók!
Litið hluta myndarinnar eftir lesturinn. Þið getið lesið þessar ritningar, sem tengjast lestri hverrar viku í Kom, fylg mér.
-
Vika 1: Mormón 3:20–22
-
Vika 2: Mormón 7:8–10
-
Vika 3: Eter 4:11–12
-
Vika 4: Eter 6:12
Myndskreyting: Brooke Smart