2024
Garðyrkja með mömmu
Nóvember 2024


„Garðyrkja með mömmu,“ Barnavinur, nóvember 2024, 30–31.

Garðyrkja með mömmu

Þessi saga gerðist í Nýja-Sjálandi.

Mamma og dóttir í garðinum

Hæ, Emily! Er ekki huggulegt úti?

Jú! Má ég prufa? Mig langar að hjálpa.

Skóflan gæti verið of stór fyrir þig. Viltu ekki hjálpa mér með illgresið í garðinum?

Allt í lagi!

Mamma heldur á illgresi

Við skulum passa okkur að slíta ekki upp blóm. Ég skal sýna þér hvað er illgresi.

Telpa í garðinum

Þurfum við að reita upp allt illgresið? Það er svo mikið af því.

Mamma talar

Við gerum það ef við viljum að garðurinn líti vel út.

Þreytt stúlka í garðinum

Að hirða um garðinn er erfitt.

Mamma vinnur í blómabeðum

Þú hefur rétt fyrir þér. En það þarf samt að vinna verkið.

Af hverju gróðursettum við svo mörg blóm? Það er bara meiri vinna!

Rós

Hvers vegna heldur þú að himneskur faðir hafi skapað svo fallegar rósir?

Ég veit það ekki.

Mamma heldur á rós

Af því að hann vill að við njótum þess að horfa á þær.

Telpa með rósir

Það er eins og þessi söngur! „Ég er glöð að vera í þessum fallega heimi sem himneskur faðir skapaði fyrir mig.“

Mamma og dóttir horfa yfir garðinn

Mamma: Þess vegna er mér sama þótt ég leggi hart að mér. Blómin gleðja mig.

Emily: Þau minna okkur á kærleika himnesks föður!

PDF

Myndskreyting eftir Alyssa M. Gonzalez