„Ráðstefnufréttir,“ Barnavinur, nóvember 2024, 4–5.
Ráðstefnufréttir
Ráðstefnutilvitnanir
Horft á aðalráðstefnu víða um heim
Ég nýt þess að hlýða á postulana og spámann okkar, Russell M. Nelson forseta, tala á ráðstefnu. Ég elska að hafa spámann sem er 100 ára gamall!
Luciano F., 6 ára, Magallanes, Síle
Greinarforsetinn minn bjó til síðu með spurningum og svörum fyrir aðalráðstefnu fyrir börnin í Barnafélaginu. Það hjálpaði mér að hlusta á ræður ráðstefnunnar. Það var mjög gaman!
Yen-Ting C., 10 ára, Changhua County, Taívan
Aðalráðstefna er besti tíminn til að leitast eftir og meðtaka persónulegan innblástur.
Janice K., 12 ára, Goa, Indlandi
Það vakti mér gleði að syngja á aðalráðstefnu, einkum þegar ég var að syngja um Jesú Krist og himneskan föður.
Annelise G., 10 ára, Utah, Bandaríkjunum
Barnakór
Hundruð barna frá Utah í Bandaríkjunum sungu á síðdegishluta laugardags. Þrjú laganna sem þau sungu voru úr hinni nýju Sálmar – Fyrir heimili og kirkju.
Hve mörg musteri?
Musteri eru í byggingu um allan heim! Hve mörg musteri tilkynnti Nelson forseti á þessari ráðstefnu?
-
8 í Norður-Ameríku
-
+ 1 á Karíbahafseyjum
-
+ 1 í Mið-Ameríku
-
+ 2 í Suður-Ameríku
-
+ 2 í Evrópu
-
+ 3 í Afríku
-
= ___ musteri
Heildarfjöldi Mustera:
-
190 starfandi
-
116 tilkynnt
-
50 í byggingu
-
7 Í endurbótum
Nú og þá
Þegar aðalráðstefna hófst fyrir 194 árum, gat aðeins lítill hópur fólks hlýtt á spámanninn í eigin persónu.
Fyrir 100 árum var hægt að hlusta á ráðstefnu í útvarpi.
Fyrir 75 árum var hægt að horfa á hana í sjónvarpi.
Fyrir 25 árum var hægt að horfa eða hlusta á hana á Alnetinu.
Í dag getur fólk horft eða hlustað á aðalráðstefnu hvar sem er í heiminum!