2024
Sérstök ráðstefna
Nóvember 2024


„Sérstök ráðstefna,“ Barnavinur, nóvember 2024, 8–9.

Sérstök ráðstefna

Kannski gæti það gert hana hamingjusama að hjálpa, eins og Nelson forseti sagði.

Þessi saga gerðist í Indónesíu.

Systur rífast um dúkku

„Aminah, ég á þetta!“ hrópaði Indira. Hún hrifsaði dúkkuna af litlu systur sinni.

„Stelpur, ég er að fara,“ kallaði mamma. „Verið góðar fyrir pabba.“

Indira leit upp. „Hvert ertu að fara?“

„Á markaðinn. Ég ætla að kaupa mat til að elda eitthvað sérstakt á morgun.“ Mamma veifaði bless.

Sérstaka máltíð? En af hverju? Indira fór til að finna pabba. „Af hverju er morgundagurinn sérstakur?“ spurði hún.

Pabbi brosti. „Á morgun fáum við að horfa á aðalráðstefnu! Það er sérstakt því við fáum að hlýða á spámanninn og aðra kirkjuleiðtoga. Þeir segja okkur það sem himneskur faðir vill að við heyrum.“

Þegar mamma kom heim gekk hún frá matnum. Pabbi sópaði gólfið.

Foreldrar þrífa húsið

„Indira, geturðu hjálpað Aminah að taka til fötin sín fyrir morgundaginn?“ spurði mamma.

Indira gretti sig. „Af hverju þarf ég að hjálpa henni?“

„Gerðu það sem ég bið um,“ sagði mamma.

Indira andvarpaði. Hún dró lappirnar og fór til að hjálpa Aminah.

Morguninn eftir vaknaði Indira og fann girnilegan ilm. Hún stökk fram úr rúminu og hljóp inn í eldhúsið. Mamma hafði gert rendang og satay úr nautakjöti til að borða síðar í hádeginu! Það myndi bragðast svo vel.

Fjölskylda horfir á aðalráðstefnu

Brátt hófst aðalráðstefnan. Indira sat með fjölskyldu sinni og horfði á sjónvarpið. Hún hlustaði á kórinn syngja. Hún heyrði fólk tala um musteri og ritningar og Jesú Krist.

Síðasti ræðumaður var spámaðurinn, Russell M. Nelson forseti. Hann talaði um það hvernig kirkjan hjálpar fólki um allan heim.

Mesta gleði „okkar á rætur í því að liðsinna bræðrum okkar og systrum,“ sagði hann.

Indira hugleiddi þetta. Gerði það hana hamingjusama að hjálpa? Hún hélt áfram að hlusta. Nelson forseti sagði það geta hjálpað okkur að líkjast Jesú Kristi að lifa eftir öðru æðsta boðorðinu.

Þegar ráðstefnunni lauk, borðuðu þau hádegismatinn sem mamma hafði eldað. Indira hélt áfram að hugsa um ræðu spámannsins.

Fjölskylda neytir hádegisverðar

„Hvert er annað æðsta boðorðið?“ spurði hún.

„Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig,“ sagði pabbi.

Indira hugsaði um fólkið sem kirkjan hjálpaði um allan heim. „Hvernig get ég hjálpað, ef náungar mínir búa langt í burtu?“

„Náungar þínir eru allir umhverfis þig,“ sagði mamma. „Eins og fjölskyldumeðlimir þínir.“

Indira leit niður. Hún var stundum ekki mjög vinsamleg við fjölskyldu sína.

Kannski gæti það þó gert hana hamingjusama að hjálpa henni, líkt og Nelson forseti sagði. Það var ein leið til að fylgja Jesú. Hún vildi reyna!

Það sem eftir lifði vikunnar reyndi Indira að vera sérstaklega góð við fjölskyldu sína. Hún lék við Amirah. Hún deildi leikföngunum sínum. Hún gerði það sem mamma og pabbi báðu um án þess að mögla. Þegar Indira hjálpaði fjölskyldu sinni voru þau glöð. Það gladdi hana líka.

Systur leika saman

Spámaðurinn hafði rétt fyrir sér. Það færði henni gleði að hjálpa öðrum!

Telpa á gangi úti
PDF

Myndskreyting: Judi Abbot

  1. Annað æðsta boðorðið,“ aðalráðstefna, október 2019.

  2. Sjá Matteus 22:37–39.