Ungmenni
Viðauki


Viðauki

Himneskur faðir ykkar býður ykkur að taka á móti helgiathöfnum. Þessar helgiathafnir innihalda sáttmála – þið gefið Guði loforð og hann gefur ykkur loforð. Þið gerið þessa sáttmála til dæmis þegar þið eruð skírð og staðfest, þegar þið fáið musterisgjöf ykkar og þegar þið eruð innsigluð um tíma og alla eilífð í húsi Drottins. Að gera og halda sáttmála mun færa ykkur gleði og hamingju og veita ykkur aðgang að krafti Guðs ykkur til hjálpar við að snúa aftur í návist hans, þar sem þið getið notið eilífs lífs með honum.

Til að læra meira um hverju þið lofið Guði þegar þið gerið þessa sáttmála – og hverju hann lofar ykkur – sjá Almenn handbók: Þjónusta í Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu, 3.5, Gospel Library.

Íhugið spurningarnar hér á eftir. Þetta eru spurningarnar sem þið fáið í musterismeðmælaviðtali, en þið þurfið ekki að bíða eftir viðtali. Framkvæmið ykkar eigið andlega sjálfsmat hvenær sem þið viljið.

Þema Stúlknafélagsins, þema Aronsprestdæmissveita og boðorðin tíu geta líka verið gagnleg verkfæri í sjálfsmati ykkar.

Musterismeðmælaspurningar fyrir ungmenni

  • Trúir þú á og átt vitnisburð um Guð, eilífan föður; son hans, Jesú Krist; og heilagan anda?

  • Átt þú vitnisburð um friðþægingu Jesú Krists og hlutverk hans sem frelsara og lausnara þíns?

  • Átt þú vitnisburð um endurreisn fagnaðarerindis Jesú Krists?

  • Styður þú forseta Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu sem spámann, sjáanda og opinberara og þann eina á jörðu sem hefur valdsumboð til að nota alla prestdæmislykla? Styður þú meðlimi Æðsta forsætisráðsins og Tólfpostulasveitarinnar sem spámenn, sjáendur og opinberara? Styður þú aðra aðalvaldhafa og staðarleiðtoga kirkjunnar?

  • Drottinn hefur sagt að allt skuli gert „í hreinleika“ frammi fyrir honum (Kenning og sáttmálar 42:41). Sækist þú eftir siðferðislegum hreinleika í hegðun og hugsun? Hlýðir þú skírlífislögmálinu?

  • Er persónuleg og opinber breytni þín gagnvart meðlimum fjölskyldu þinnar og öðrum í samræmi við kenningar kirkju Jesú Krists?

  • Styður þú eða kynnir einhverjar kenningar, háttsemi eða hugmyndir sem andstæðar eru kenningum Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu?

  • Reynir þú að halda hvíldardaginn heilagan, bæði heima og í kirkju, sækja samfundi þína, búa þig undir og meðtaka sakramentið verðuglega og haga lífi þínu í samræmi við lögmál og boðorð fagnaðarerindisins?

  • Ástundar þú heiðarleika í allri þinni breytni?

  • Greiðir þú fulla tíund?

  • Skilur þú og heldur Vísdómsorðið?

  • Eru einhverjar alvarlegar syndir í lífi þínu, sem þarfnast úrlausnar með valdhöfum prestdæmisins, sem hluti af iðrun þinni?

  • Telur þú þig verðuga/n þess að fara í hús Drottins og taka þátt í helgiathöfnum musterisins?

Þema Stúlknafélagsins

Ég er ástkær dóttir himneskra foreldra, með guðlegt eðli og eilíf örlög.

Ég, sem lærisveinn Jesú Krists, leitast við að líkjast honum. Ég leita persónulegrar opinberunar og bregst við henni og þjóna öðrum í helgu nafni hans.

Ég mun standa sem vitni Guðs, alltaf, í öllu og alls staðar.

Ég keppi að upphafningu, virði gjöf iðrunar og reyni dag hvern að verða betri. Ég mun, fyrir trú, styrkja heimili mitt og fjölskyldu, gera og halda helga sáttmála og meðtaka helgiathafnir og blessanir hins heilaga musteris.

Þema Aronsprestdæmissveita

Ég er ástkær sonur Guðs og hann ætlar mér verk að vinna.

Ég mun elska Guð af öllu hjarta, mætti, huga og styrk, halda sáttmála mína og nota prestdæmið til að þjóna öðrum, fyrst á eigin heimili.

Er ég þjóna, iðka trú, iðrast og bæti mig dag hvern mun ég gera mig hæfan til að hljóta blessanir musterisins og varanlega gleði fagnaðarerindisins.

Ég mun keppa að því að verða kostgæfinn trúboði, tryggur eiginmaður og ástríkur faðir, með því að vera sannur lærisveinn Jesú Krists.

Ég mun gera mitt til að búa heiminn undir Síðari komu frelsarans með því að bjóða öllum að koma til Krists og hljóta blessanir friðþægingar hans.

Boðorðin tíu

  • Þú skalt ekki hafa aðra guði en mig.

  • Þú skalt ekki gera þér líkneski.

  • Þú skalt ekki leggja nafn Drottins, Guðs þíns, við hégóma.

  • Minnstu þess að halda hvíldardaginn heilagan.

  • Heiðra föður þinn og móður.

  • Þú skalt ekki morð fremja.

  • Þú skalt ekki drýgja hór.

  • Þú skalt ekki stela.

  • Þú skalt ekki bera ljúgvitni.

  • Þú skalt ekki girnast.

Sjá 2. Mósebók 20:3–17.