Ungmenni
10. Líkami ykkar er heilagur


faðir og móðir og ungabarn

Fjölskylda horfir í átt að ljósinu, eftir Lovetta Reyes Cairo. Með leyfi Havenlight

10.

Líkami ykkar er heilagur

1. Korintubréf 6:18–20

Líkami ykkar er ótrúleg gjöf frá himneskum föður ykkar. Það að hafa líkama veitir ykkur aukinn kraft til að iðka frelsi ykkar til að velja á milli þess sem er rétt og rangt. Hið endurreista fagnaðarerindi Jesú Krists getur hjálpað ykkur að sjá líkama ykkar út frá sjónarhorni Guðs. Og þetta skiptir miklu máli í ákvörðunum ykkar um hvað þið gerið við líkama ykkar og hvernig á að hirða um hann.

Eilífur sannleikur

Líkami ykkar er eftir mynd Guðs – dýrðlegustu og tignarlegustu veru alheimsins. Ritningarnar líkja líkama okkar við heilagt musteri, stað þar sem andinn getur dvalið. Auðvitað er líkami ykkar ekki fullkominn núna. Sú reynsla sem þið eruð að upplifa með líkama ykkar getur hjálpað ykkur að búa ykkur undir að hljóta einhvern daginn fullkominn, upprisinn, dýrðlegan líkama.

Sálin er samsett úr líkama ykkar og anda ykkar. Af þessum sökum eru líkamlegt heilbrigði og andlegt heilbrigði nátengd. Frelsarinn opinberaði Vísdómsorðið til að kenna reglur þess að hirða vel um líkama okkar og lofa líkamlegum og andlegum blessunum.

Kynferðislegar tilfinningar eru mikilvægur hluti af áætlun Guðs til að skapa hamingjuríkt hjónaband og eilífar fjölskyldur. Þessar tilfinningar eru ekki syndugar – þær eru helgar. Vegna þess að kynferðislegar tilfinningar eru svo helgar og svo kraftmiklar, hefur Guð gefið ykkur skírlífislögmál sitt til að búa ykkur undir að nota þessar tilfinningar eins og hann áformar. Skírlífislögmálið segir að Guð samþykki einungis kynferðislegar athafnir milli karls og konu sem eru í hjónabandi. Margir hunsa eða jafnvel hæðast að lögmáli Guðs, en Drottinn býður okkur að vera lærisveinar hans og lifa eftir æðri staðli.

Boð

Komið fram við líkama ykkar – og líkama annarra – af virðingu. Þegar þið takið ákvarðanir um klæðnað ykkar, hárgreiðslu og útlit, spyrjið ykkur þá sjálf: „Er ég að heiðra líkama minn sem heilaga gjöf frá Guði?“ Himneskur faðir vill að við sjáum hvert annað eins og við í raun erum: ekki bara efnislíkama, heldur ástkær börn hans með guðleg örlög. Forðist fatastíl sem leggur áherslu á efnislíkama ykkar á óviðeigandi hátt, í stað þess að skilgreina hver þið eruð sem barn Guðs með eilífa framtíð. Látið siðferðislegan hreinleika og kærleika til Guðs ráða ákvörðunum ykkar. Leitið ráða hjá fjölskyldu ykkar.

Gerið hluti sem styrkja líkama ykkar, ekki það sem meiðir hann eða skaðar. Njótið með þakklæti þeirra mörgu góðu hluta sem Guð hefur séð okkur fyrir. Hafið í huga að áfengi, tóbak, kaffi, te og önnur skaðleg lyf og efni eru ekki ætluð líkama ykkar eða anda. Gagnleg efni, eins og lyfseðilsskyld lyf, geta jafnvel verið eyðileggjandi ef þau eru ekki notuð rétt.

Haldið kynlífi og kynferðislegum tilfinningum heilögum. Það ætti ekki að vera viðfangsefni gríns eða skemmtunar. Utan hjónabands milli karls og konu, er rangt að snerta persónulega, heilaga líkamshluta annars, jafnvel þótt viðkomandi sé klæddur. Í vali ykkar um hvað þið gerið, horfið á, lesið, hlustið á, hugsið um, birtið eða sendið textaskilaboð um, forðist allt sem vísvitandi vekur lostafullar tilfinningar hjá öðrum eða sjálfum ykkur. Þetta á við um klám í hvaða formi sem er. Ef ykkur finnst aðstæður og athafnir auka freistingar, forðist þær þá. Þið vitið hverjar þessar aðstæður og athafnir eru. Ef þið eruð ekki viss getur andinn, fjölskylda ykkar og leiðtogar hjálpað ykkur að vita það. Sýnið föður ykkar á himnum að þið heiðrið og virðið hinn helga kraft til að skapa líf.

Jesús Kristur hugsar og styðst við staf sinn

Fyrirheitnar blessanir

Virðing ykkar fyrir ykkur sjálfum og öðrum mun aukast þegar þið heiðrið líkama ykkar með hegðun, útliti og klæðaburði.

Drottinn hefur lofað þeim miklum þekkingarauði sem halda Vísdómsorðið. Heilbrigður líkami, laus við fíkn, eykur líka hæfni ykkar til að hljóta persónulega opinberun, hugsa skýrt og þjóna Drottni.

Að lifa eftir skírlífislögmálinu vekur velþóknun Guðs og persónulegan andlegan kraft. Það verndar ykkur og framtíðarfjölskyldu ykkar. Þegar þið eruð gift mun þetta lögmál færa aukna ást, traust og einingu í hjónaband ykkar. Að hlýða þessu lögmáli mun gera ykkur kleift að þroskast að eilífu og verða líkari himneskum föður ykkar. Sjálfstraust ykkar mun vaxa er þið lifið sem lærisveinar Jesú Krists.

Spurningar og svör

Hver er staðall Drottins varðandi klæðnað, umhirðu, húðflúr og götun? Staðall Drottins er sá að þið heiðrið helgi líkama ykkar, jafnvel þegar það merkir að vera öðruvísi en annað fólk. Látið þennan sannleika og andann leiða ykkur í ákvarðanatökum – einkum ákvörðunum sem hafa varanleg áhrif á líkama ykkar. Verið skynsöm og trúföst og leitið ráða hjá fjölskyldu ykkar og leiðtogum.

Hvernig get ég sigrast á freistingum og slæmum venjum? Himneskur faðir og Jesús Kristur hafa kraft til að hjálpa ykkur. Fyllið líf ykkar af því sem býður krafti þeirra inn í líf ykkar, eins og bæn, ritningarnámi og þjónustu við aðra. Snúið ykkur til Jesú Krists og fagnaðarerindis hans og þið munið uppgötva að veikleikar geta orðið að styrkleikum. Leitið aðstoðar fjölskyldu, leiðtoga og traustra fagaðila eftir þörfum. Þau geta hjálpað ykkur að endurheimta stjórn á lífi ykkar. Þetta gæti tekið tíma, svo verið þolinmóð og gefist aldrei upp.

Ég laðast að fólki af sama kyni. Hvernig eiga þessir staðlar við um mig? Það er ekki synd að laðast að fólki af sama kyni. Ef þið hafið þessar tilfinningar en ástundið eða breytið ekki eftir þeim, þá eruð þið að lifa eftir hinu helga skírlífislögmáli himnesks föður. Þið eruð ástkær börn Guðs og lærisveinar Jesú Krists. Munið að frelsarinn skilur allt sem þið upplifið. Í gegnum sáttmálssamband ykkar við hann, munið þið finna styrk til að hlýða boðorðum Guðs og hljóta þær blessanir sem hann lofar. Treystið honum og fagnaðarerindi hans.

Ég varð fyrir misnotkun og ég skammast mín. Er ég sek/sekur um synd? Nei. Að vera fórnarlamb hvers kyns misnotkunar eða árásar gerir ykkur ekki sek um synd. Frelsarinn elskar ykkur. Hann er styrkur ykkar. Hann vill hjálpa ykkur, lækna ykkur og veita ykkur frið. Traustir fagaðilar, fjölskylda ykkar og leiðtogar geta líka veitt aðstoð.

Sjá 1. Mósebók 1:27 (við erum eftir mynd Guðs); Jóhannes 14:18 (frelsarinn lofar huggun); Filippíbréfið 4:7 (friður Guðs er æðri öllum skilningi); Mósía 2:41 (þeir sem halda boðorð Guðs eru blessaðir bæði stundlega og andlega); Kenning og sáttmálar 88:15 (andinn og líkaminn eru sálin); 89 (Vísdómsorðið); 121:45 (dyggðugar hugsanir leiða til aukins trausts).

Musterismeðmælaspurningar

  • Drottinn hefur sagt að allt skuli gert „í hreinleika“ frammi fyrir honum (Kenning og sáttmálar 42:41). Sækist þú eftir siðferðislegum hreinleika í hegðun og hugsun?

  • Hlýðir þú skírlífislögmálinu?

  • Skilur þú og heldur Vísdómsorðið?