12.
Jesús Kristur færir gleði
Himneskur faðir ykkar er glaður. Hann vill að þið, börnin hans, njótið eins mikillar gleði og mögulegt er. Þess vegna fyrirbjó hann endurlausnaráætlunina. Hann sendi son sinn, Jesú Krist, til að vera frelsari ykkar og kenna fagnaðarerindi hans. Orðið fagnaðarerindi merkir „góð tíðindi“ og góðu fréttirnar eru þær að sökum Jesú Krists getið þið öðlast hamingju í þessu lífi og fyllingu gleðinnar að eilífu.
Eilífur sannleikur
Ykkur er ætlað að vera hamingjusöm og glöð. Það er tilgangur lífs ykkar. Það er tilgangur sæluáætlunar himnesks föður. Þetta þýðir ekki að þið munið aldrei verða sorgmædd eða upplifa erfiðleika. En það þýðir að frelsarinn getur hjálpað ykkur að komast í gegnum erfiða tíma og finna gleði.
Gleði hlýst ekki vegna aðstæðna ykkar; hún hlýst af því að fylgja Jesú Kristi. Þið gætuð átt slæman dag, slæma viku eða slæmt ár. En gleði er ekki fjarvera sorgar í lífinu; hún er nærvera Krists í lífi ykkar.
Gleði frelsarans er meiri og varanlegri en nokkuð annað. Satan mun freista ykkar til að leita skemmtunar og fullnægju á eigingjarnan hátt eða frá stundlegum ánægjugjöfum. Allt sem er andstætt Jesú Kristi og boðorðum hans getur ekki fært ykkur sanna, varanlega gleði og hamingju. Hafið í huga að jarðneskir hlutir eru tímabundnir. Fagnaðarerindi Jesú Krists býður gleði og hamingju sem er djúp, heilög og ævarandi.
Boð
Veljið gleði. Þótt satt sé að sorg og erfiðleikar séu í þessum heimi, þá hefur himneskur faðir líka fyllt heiminn með mörgum fallegum og heilnæmum hlutum. Leitið þeirra. Reynið að finna ástæður til að gleðjast á hverjum degi – og skrifið þær jafnvel niður. Þetta eru gjafir frá ykkar ástríka föður á himnum.
Færið öðrum gleði og hamingju. Jesús Kristur fann fyllingu gleðinnar í því að færa okkur gleði. Þið getið fylgt fordæmi hans með því að finna gleði og hamingju í þjónustu við aðra. Hjálpið einhverjum að finna fyrir kærleika. Hrósið einhverjum einlæglega. Veitið hvatningu einhverjum sem á erfitt. Ef ykkur líður einhvern tíma eins og þið þurfið aukna gleði í lífinu, reynið þá að færa öðrum gleði.
Gleðjist í því að tilbiðja Drottin. Þegar þið farið í kirkju, einblínið þá á gleðina sem Jesús Kristur veitir ykkur og lofið hann fyrir það! Leggið ykkar af mörkum til að gleðilegur andi ríki á kirkjusamkomum ykkar. Gerið helga tónlist að hluta af tilbeiðslu ykkar heima og í kirkju.
Fyrirheitnar blessanir
Þið getið fundið gleði, jafnvel þegar lífið er erfitt. Þið gætuð velt fyrir ykkur hvernig það er mögulegt, en það er satt. Trú ykkar á Jesú Krist, græðandi máttur hans og eilíf fyrirheit hans geta veitt ykkur stöðuga gleði. Gleði hans yfirskyggir sorgina og færir frið sem er æðri öllum skilningi.
Fylling gleðinnar bíður ykkar í himneska ríki Guðs. Jesús Kristur sigraðist á öllu sem gæti komið í veg fyrir að þið öðluðust eilífa gleði. Ef þið treystið honum og fylgið honum, mun þessi gleði verða ykkar.
Spurningar og svör
Ef fagnaðarerindið er gleðiríkt, af hverju er ég þá svona sorgmædd/ur? Að vera döpur er ekki merki um að þið séuð ekki að lifa eftir fagnaðarerindinu. Líf hvers og eins felur í sér mótlæti, raunir og sorg. Að fylgja Jesú Kristi breytir því ekki en það tengir ykkur við frelsara sem getur huggað ykkur og hjálpað ykkur að finna gleði og hamingju.
Af hverju eru svo miklar þjáningar í heiminum? Sumar þjáningar í heiminum eru vegna þess að fólk notar sjálfræðið til að taka rangar ákvarðanir. Þetta getur valdið þjáningum fyrir það sjálft og annað fólk. Í öðrum tilvikum er þjáningin ekki neinum að kenna – hún er bara afleiðing þess að búa í ófullkomnum heimi. Hver sem ástæðan er, þá getur verið sorglegt að sjá einhvern þjást, sérstaklega ástvin. Verið viss um að Guð er einnig sorgmæddur þegar þið þjáist. Hann leyfir jarðneskum raunum að hjálpa ykkur að vaxa og búa ykkur undir eilífa gleði með sér, en hann lætur ykkur ekki þjást einsömul. Hann sendi Jesú Krist til að taka á sig sársauka ykkar, svo hann gæti hjálpað ykkur. Jesús Kristur er styrkur ykkar! Hann býður ykkur einnig, sem einum af fylgjendum sínum, að gera það allt hvað þið getið til að hjálpa við að lina þjáningar annarra.
Sjá Sálmarnir 16:11 (í návist Guðs er fylling gleði); 95:1 (fögnum fyrir Drottni); Jóhannes 16:33 (verið hughraust; Jesús Kristur sigraði heiminn); Galatabréfið 5:22 (ávöxtur andans er gleði); Hebreabréfið 12:2 (Jesús þoldi þjáningar sínar vegna gleðinnar af því að frelsa börn Guðs); 2. Nefí 2:25 (Guð vill að þið njótið gleði); Alma 26:15–16 (að vinna verk Guðs leiðir til gleði); Kenning og sáttmálar 18:15–16 (hversu mikil verður gleði ykkar þegar þið hjálpið öðrum að koma til Krists).
Musterismeðmælaspurning
-
Átt þú vitnisburð um friðþægingu Jesú Krists og hlutverk hans sem frelsara og lausnara þíns?