Ungmenni
9. Þið eruð blessuð með lyklum og valdi prestdæmisins


himneskir sendiboðar endurreisa prestdæmislykla í Kirtland-musterinu

9.

Þið eruð blessuð með lyklum og valdi prestdæmisins

Matteus 16:18‒19

Þegar Jesús kenndi Pétri um prestdæmisvaldið, talaði hann um lykla. Lyklar eru notaðir til að aflæsa og opna hluti. Prestdæmislyklar geta opnað fyrir kraft, gjafir og blessanir Guðs í lífi ykkar.

Eilífur sannleikur

Allir lyklar og valdsumboð prestdæmisins koma frá Jesú Kristi. Sérhver prestdæmishafi getur rakið valdsumboð sitt til hans. Frelsarinn ákvarðar hver hlýtur þetta valdsumboð og hverjir fá prestdæmislykla. Við treystum fullkominni þekkingu hans.

Jesús Kristur hefur endurreist prestdæmi sitt á okkar tíma. Hann leiðbeinir hvernig prestdæmið skal notað. Adam, Móse, Pétur og margir aðrir spámenn í gegnum söguna hlutu prestdæmislykla. Á okkar tíma, hlaut Joseph Smith prestdæmislykla frá Jóhannesi skírara, Pétri, Móse, Elíasi, Elía og fleirum. Meðlimir Æðsta forsætisráðsins og Tólfpostulasveitarinnar hafa alla prestdæmislykla á jörðu á okkar tíma. Staðarprestdæmisleiðtogar og sveitarforsetar hafa líka prestdæmislykla fyrir kallanir sínar. Prestdæmislyklar stjórna verki Guðs. Þeir heimila og gefa körlum og konum vald til að aðstoða við verkið.

Prestdæmisvald blessar öll börn Guðs. Þar sem prestdæmið var endurreist, getið þið meðtekið helgiathafnir og gert sáttmála við Guð. Þið getið starfað í nafni Guðs þegar þið hljótið verkefni eða köllun frá einhverjum sem hefur valdsumboð.

Boð

Takið á móti kirkjuköllunum og þjónið trúfastlega. Þegar þið hljótið kirkjuköllun eruð þið sett í embætti með valdsumboði frá Guði til að þjóna í því hlutverki. Þið getið líka hlotið leiðsögn frá Guði varðandi þjónustu ykkar. Þegar þið þjónið eruð þið fulltrúar Jesú Krists. Leggið ykkar besta af mörkum.

Styðjið þá sem Guð hefur kallað til að þjóna. Að styðja þýðir meira en bara að rétta upp hönd þegar nafn er lesið upp á kirkjusamkomu. Það merkir að styðja og hjálpa. Leitið leiða til að sýna að þið styðjið það fólk sem Jesús Kristur hefur kallað til að þjóna í kirkju sinni.

Sinnið verkefnum frá kirkjuleiðtogum ykkar – þar á meðal frá sveitar- eða bekkjarforsætisráði ykkar. Þeir hafa valdsumboð frá Guði, sem þeir fela ykkur fyrir það verkefni. Þið gætuð fengið það verkefni að þjóna einhverjum, bjóða fólk velkomið þegar það kemur á sakramentissamkomu eða hjálpa við viðburð. Hvert sem verkefnið er, lítið þá á það sem tækifæri til að verða lærisveinn Jesú Krists og þjóna börnum Guðs.

Jesús Kristur er skírður af Jóhannesi skírara í ánni Jórdan

Fyrirheitnar blessanir

Þið getið treyst því að helgiathafnirnar sem þið takið á móti séu heimilaðar af Jesú Kristi. Þetta er eitt af því sem gerir kirkju Jesú Krists einstaka. Kraftur Guðs opinberast í helgiathöfnum prestdæmisins.

Þið munið verða verkfæri í höndum Guðs. Þegar þið þjónið Drottni með hans heimild og undir leiðsögn þjóna hans sem hafa prestdæmislykla, mun hann hjálpa ykkur að vita hvernig þjóna skal öðrum í verki hans. Jesús Kristur er styrkur ykkar. Þjónusta ykkar mun hjálpa ykkur að komast nær honum og færa ykkur gleði.

Spurningar og svör

Hver í deildinni minni hefur prestdæmislykla? Biskup og forsetar öldunga-, kennara- og djáknasveita hafa prestdæmislykla. Þetta þýðir að Drottinn hefur falið þeim að stjórna því hvernig prestdæmið er notað til að þjóna og blessa alla í deildinni.

Hvernig blessa prestdæmislyklar mig? Helgiathafnir líkt og skírn og sakramentið eru heimilaðar með lyklum prestdæmisins. Þegar þið takið á móti köllun í kirkjunni, eruð þið sett í embætti undir leiðsögn einhvers sem hefur lykla. Það blessar ykkur með valdsumboði til að þjóna í þeirri köllun. Kirkjuleiðtogar og kennarar sem þjóna ykkur hlutu einnig prestdæmisvald í gegnum lykla.

Hvernig þjóna karlar og konur með prestdæmisvaldi? Verðugum körlum er veitt prestdæmið og þeir eru vígðir til prestdæmisembætta, líkt og djákna, kennara, prests og öldungs. Bæði konur og karlar sem sett eru í embætti til að þjóna í köllun hljóta úthlutað prestdæmisvald frá Guði til að framfylgja þeirri köllun. Sama gildir um konur og karla sem hljóta verkefni frá kirkjuleiðtoga.

Sjá Kenning og sáttmálar 35:24–27 (kirkjan er leidd með lyklunum sem Drottinn hefur gefið); 107:18–20 (lyklar Melkísedeksprestdæmisins og Aronsprestdæmisins); 110:11–16 (Móse, Elías og Elía endurreistu lykla).

Musterismeðmælaspurningar

  • Styður þú forseta Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu sem spámann, sjáanda og opinberara og þann eina á jörðu sem hefur valdsumboð til að nota alla prestdæmislykla?

  • Styður þú meðlimi Æðsta forsætisráðsins og Tólfpostulasveitarinnar sem spámenn, sjáendur og opinberara?

  • Styður þú aðra aðalvaldhafa og staðarleiðtoga kirkjunnar?