Ungmenni
2. Guð vill eiga samskipti við ykkur


Faðirinn og sonurinn birtast Joseph Smith í Lundinum helga

2.

Guð vill eiga samskipti við ykkur

Kenning og sáttmálar 8:2–3

Endurreisn fagnaðarerindisins hófst þegar unglingur að nafni Joseph Smith baðst fyrir og himneskur faðir og sonur hans, Jesús Kristur, svöruðu honum. Guð heldur áfram að leiða kirkju sína með lifandi spámönnum. Hann vill líka tala við ykkur, börnin sín, með heilögum anda. Að læra hvernig heilagur andi talar til ykkar er ein dýrmætasta leikni sem þið getið öðlast.

Eilífur sannleikur

Andinn leiðir ykkur til himnesks föður og Jesú Krists. Þetta er mikilvægt hlutverk heilags anda. Hann mun líka hvetja ykkur til að iðrast og fylgja Jesú Kristi svo að þið getið hlotið blessanir friðþægingar hans. Þegar þið iðrist mun andinn hreinsa ykkur og hjálpa ykkur að breytast.

Heilagur andi talar í huga ykkar og hjarta. Skilaboð andans geta borist í huga ykkar á margan hátt – með innblásnum hugsunum, aðvörunum, skýrum skilningi og andlegum minningum. Heilagur andi getur talað til hjartans í gegnum upplyftandi tilfinningar eins og huggun, fullvissu, frið, kærleika, gleði, auðmýkt, þakklæti og þolinmæði.

Boð

„Meðtak hinn heilaga anda.“ Þessi orð voru töluð þegar þið voruð staðfest sem meðlimir í kirkju Krists. Hvernig meðtakið þið heilagan anda? Með því að hlýða kenningum Jesú Krists. Hann er styrkur ykkar. Það býður heilögum anda í líf ykkar að fylgja honum.

Leitið himnesks föður ykkar í bæn. Opnið hjörtu ykkar fyrir honum. Þakkið honum fyrir þær mörgu dásamlegu blessanir sem hann hefur veitt ykkur. Miðlið honum gleði ykkar, áhyggjum og spurningum. Verið hljóð og hlustið eftir svörum hans, sem geta komið sem friðartilfinning, hugsanir eða hvatning til að gera eitthvað.

Heyrið orð Guðs í ritningunum. Ritningarnar eru orð Guðs til ykkar! Lærið af þeim daglega til að uppgötva rödd hans og finna elsku hans. Íhugið við lesturinn hvað hann gæti verið að kenna ykkur og skráið hughrifin sem berast. Gerið það að daglegum vana að læra ritningarnar – einkum Mormónsbók – allt ykkar líf.

Bregðist við andlegum hughrifum sem ykkur berast. Ef þið fáið hugsun eða hugboð um að gera góðverk sem mun blessa einhvern, gerið það þá! Allir góðir hlutir koma frá Guði. Sýnið himneskum föður ykkar að hann geti treyst ykkur til að fylgja hughrifum frá honum.

Jesús Kristur

Fyrirheitnar blessanir

Heilagur andi mun hugga og leiðbeina ykkur. Hann er þekktur sem huggarinn. Hann mun styðja ykkur á erfiðleikatímum. Hann mun hjálpa ykkur að vita hvað þið eigið að segja eða gera. Með áhrifum hans getið þið greint á milli þess sem er sannleikur og þess sem er rangt. Hann getur hjálpað ykkur að finna hið góða í öðrum og í ykkur sjálfum. Andinn getur líka varað ykkur við hættu. Hann mun leiða ykkur í átt til Jesú Krists og burt frá synd.

Þið getið hlotið andlegar gjafir. Guð gefur börnum sínum margar gjafir með anda sínum. Meðal þeirra sem nefndar eru í ritningunum má nefna opinberun, trú á Jesú Krist, kennslu, dómgreind og visku. Biðjist fyrir og spyrjið himneskan föður um þær andlegu gjafir sem hann hefur gefið ykkur, hvernig þið getið þróað þær og hvernig hann vill að þið notið þær öðrum til blessunar.

Spurningar og svör

Af hverju hljóta aðrir meiri andlega reynslu en ég? Ekki eru allar andlegar upplifanir undraverðar eða stórbrotnar. Guð talar oftast til okkar með hugsunum eða mildum tilfinningum í hjörtum okkar. Þetta er hið lága hvísl hinnar hljóðu og kyrrlátu raddar. Þið gætuð verið að finna fyrir andanum en ekki borið kennsl á hann enn þá. Haldið áfram að biðja. Haldið áfram að nema orð Guðs. Með tíma og æfingu, munið þið læra að bera kennsl á andann á ýmsa vegu.

Sjá 1. Konungabók 19:11–12 (Guð talar með hljóðri, lágri röddu); Jóhannes 15:26 (andinn vitnar um Krist); Moróní 10:3–5 (þekkið sannleikann fyrir andann); Kenning og sáttmálar 11:12–13 (andinn leiðir til góðra verka); 45:57 (takið andann ykkur til leiðsagnar); 46:8–26 (andlegar gjafir).

Musterismeðmælaspurning

  • Trúir þú á og átt vitnisburð um Guð, eilífan föður; son hans, Jesú Krist; og heilagan anda?