Ungmenni
1. Áætlun Guðs er fyrir ykkur


Kristur gengur á akri

1.

Áætlun Guðs er fyrir ykkur

Alma 22:13

Áður en þið komuð til jarðar, bjugguð þið hjá himneskum foreldrum ykkar. Þið eruð ástkær börn þeirra. Á himnum lærðuð þið um áætlun Guðs fyrir fjölskyldu hans. Þið tókuð á móti þessari áætlun með gleði, því hún kæmi til með að hjálpa ykkur að vaxa og þroskast og verða líkari Guði með því að hljóta efnislíkama, verða hluti af jarðneskri fjölskyldu og upplifa jarðlífið. Sumar af þessum upplifunum yrðu erfiðar. Faðir okkar vissi þetta, því sendi hann frelsara sem hluta af áætlun sinni, Jesú Krist, ykkur til hjálpar. Við köllum þetta sáluhjálparáætlunina eða sæluáætlunina.

Eilífur sannleikur

Himneskur faðir er höfundur áætlunarinnar. Hann er faðir anda ykkar og hann elskar ykkur. Hann þráir að veita ykkur æðstu blessun sína – eilíft líf með sér. Með öðrum orðum, hann vill að þið verðið líkari honum og lifið því gleðiríka, dýrðlega lífi sem hann lifir. Hann hefur allt vald og veit alla hluti. Þið getið treyst honum, jafnvel þegar lífið er erfitt.

Jesús Kristur gerir áætlunina mögulega. Áður en heimurinn var skapaður, valdi himneskur faðir hann til að vera frelsari ykkar. Jesús Kristur er sá eini sem getur leitt ykkur aftur til föður ykkar á himnum. Þess vegna veljum við að fylgja honum. Allt er háð þessu vali!

Hjónaband og fjölskylda eru nauðsynleg í áætlun Guðs. Þið eruð hluti af fjölskyldu Guðs og öll andabörn hans koma til jarðar í gegnum móður og föður. Guð vill að dætur hans og synir þróist saman í átt að eilífri fullkomnun. Karlar og konur leggja sitt af mörkum til ástríks, sameinaðs hjónabands. Fjölskyldulíf hér á jörðu – jafnvel með öllum sínum ófullkomleika – getur fært mikla gleði. Því er ætlað að búa ykkur undir eilíft líf með Guði.

Boð

Hafið eilífa yfirsýn. Hvenær sem þið standið frammi fyrir freistingum, raunum, vonbrigðum eða erfiðum ákvörðunum, minnist þá áætlunar Guðs. Sjáið hvernig hinn eilífi sannleikur sem þið þekkið um áætlun hans getur hjálpað ykkur að líta áskoranir ykkar öðrum augum.

Leitið að hönd Guðs í lífi ykkar. Takið eftir því hvernig Guð blessar ykkur. Það gæti verið góðverk einhvers, friðarstund eða svar við bæn.

Veljið að fylgja áætlun Guðs. Lærið um það sem himneskur faðir vill að þið gerið. Leitið leiðsagnar hans þegar þið rannsakið ritningarnar, orð lifandi spámanna, fjölskylduyfirlýsinguna og patríarkablessun ykkar. Það mun hjálpa ykkur að búa ykkur undir að þjóna Drottni, sem trúboði og alla ævi. Gerið þjónustu við Drottin, eilíft hjónaband og barnauppeldi að forgangsatriði. Leggið ykkar af mörkum til að eiga hamingjusama fjölskyldu núna, með því að fylgja kenningum Jesú Krists.

Jesús Kristur gengur á engi og ljómi stafar af honum

Fyrirheitnar blessanir

Þið getið tekist á við raunir lífsins með hugrekki og von í Kristi. Þar sem þið þekkið hina eilífu áætlun Guðs, búið þið yfir dýrmætu verkfæri sem getur hjálpað ykkur á erfiðum tímum. Þið vitið að lífið er miklu meira en það sem gerist á milli fæðingar og dauða. Þið vitið hver þið í raun eruð, hver tilgangur ykkar er og hver þið getið orðið með hjálp frelsarans. Jesús Kristur er styrkur ykkar!

Þið getið hlotið eilíft líf er þið fylgið Jesú Kristi. Hann mun veita ykkur kraft til að verða líkari sér, snúa aftur til himneskra foreldra ykkar og lifa í gleði með ástvinum ykkar að eilífu. Treystið Jesú Kristi.

Spurningar og svör

Af hverju er lífið stundum svo erfitt? Hvernig get ég fundið styrk? Reynsla ykkar í þessu lífi – jafnvel sú allra erfiðasta – getur verið ykkur til góðs. Hún getur hjálpað ykkur að vaxa og taka framförum er þið snúið ykkur til frelsarans. Það er ekkert sem þið gangið í gegnum sem Jesús Kristur ekki fær skilið, vegna friðþægingarfórnar hans. Hann veit nákvæmlega hvernig á að hjálpa ykkur. Beinið lífi ykkar að honum og hann mun lyfta ykkur ofar öllum efa og ótta.

Stundum virðist hamingja í fjölskyldu og hjónabandi svo fjarri. Hvernig get ég fundið fullvissu? Hverjar sem aðstæður ykkar eru, gefist ekki upp á áætlun himnesks föður. Hann mun ekki gefast upp á ykkur. Ef þið eruð trú frelsaranum og sáttmálum ykkar, munið þið finna svör í kenningum Jesú Krists. Hann skilur allt sem þið upplifið. Þið munið öðlast styrk í gegnum hann til að hlýða boðorðum Guðs og hljóta þær blessanir sem hann lofar. Treystið honum og fagnaðarerindi hans.

Sjá 2. Nefí 9:13 (hversu mikilfengleg er áætlun Guðs okkar!); Mósía 2:41 (þeir sem halda boðorðin geta dvalið með Guði í óendanlegri sælu); Alma 12:28–34 (Guð kynnti börnum sínum endurlausnaráætlunina); Abraham 3:22–26 (áætlun Guðs fól í sér að senda okkur til jarðar, þar sem við gætum valið sjálf að fylgja boðorðum hans).

Musterismeðmælaspurning

  • Trúir þú á og átt vitnisburð um Guð, eilífan föður; son hans, Jesú Krist; og heilagan anda?