Ungmenni
5. Gangið í ljósi Guðs


Jesús Kristur gætir sauðahjarðar

Mig mun ekkert bresta, eftir Yongsung Kim. Með leyfi Havenlight

5.

Gangið í ljósi Guðs

Galatabréfið 5:25

Þið takið betri ákvarðanir þegar þið sjáið hlutina skýrt. Þess vegna er ljós svo mikilvægt; ljós auðveldar það að sjá rétta leið. Himneskur faðir hefur veitt ykkur aðgang að himneskum ljósgjafa – gjöf heilags anda – til að hjálpa ykkur að sjá skýrt hvað er gott og slæmt, rétt og rangt.

Eilífur sannleikur

Þið getið verið í stöðugu samfélagi við heilagan anda. Þegar þið voruð staðfest sem meðlimir kirkjunnar, var ykkur boðið að „meðtaka heilagan anda“. Tækifærið að hafa andann sem stöðugan förunaut er ein stærsta gjöf Guðs til ykkar.

Að taka góðar ákvarðanir, bætir getu ykkar til að finna fyrir andanum. Það er margt gott og heilnæmt í þessum heimi. Rétt eins og líkami ykkar verður fyrir áhrifum af því sem þið borðið og drekkið, verður hugur ykkar og andi fyrir miklum áhrifum af því sem þið lesið, horfið og hlustið á.

Boð

Helgið Drottni tíma á hverjum degi. Lærið af honum. Hafið hann ávallt í huga. Biðjið til himnesks föður ykkar. Kannið ritningarnar og orð lifandi spámanna. Keppið síðan að því að lifa eftir því sem þið lærið.

Leitið þess sem upplyftir, innblæs og laðar að andann. Þegar þið ákveðið hvað þið horfið á, lesið, hlustið á eða takið þátt í, íhugið þá hvaða tilfinningar það vekur hjá ykkur. Býður það upp á góðar hugsanir? Haldið ykkur fjarri öllu sem hæðist að heilögum hlutum eða er ósiðlegt. Takið ekki þátt í neinu sem dregur úr dómgreind ykkar eða næmni fyrir andanum, svo sem ofbeldi, áfengi og eiturlyfjum. Hafið hugrekki til að slökkva á myndbandi eða leik, ganga út úr kvikmyndasal eða dansleik, breyta tónlist ykkar eða snúa baki við hverju því sem ekki samræmist andanum.

Notið samfélagsmiðla til að upplyfta. Samfélagsmiðlar geta verið öflugt samskiptatæki. Ef þið notið þá, einblínið þá á ljós, trú og sannleika. Berið ekki líf ykkar saman við það sem aðrir virðast vera að upplifa. Munið að virði ykkar kemur frá því að vera barn himneskra foreldra, ekki frá samfélagsmiðlum.

Leitið heilbrigðrar upplifunar og raunverulegra, varanlegra sambanda. Gætið þess að notkun ykkar á tækni og miðlum komi ekki í stað þess að verja tíma í eigin persónu með fjölskyldu og vinum. Samfélagsmiðlar og önnur tækni geta tekið mikinn tíma frá ykkur án þess að gefa mikið gildi í staðinn. Takið ykkur hlé frá sýndarheiminum og tengist fólki í raunveruleikanum.

Jesús Kristur leiðir sauðahjörð yfir grasvöll

Fyrirheitnar blessanir

Þið getið alltaf haft andann með ykkur. Þetta loforð er hluti af sáttmálanum sem þið gerið í hvert sinn sem þið meðtakið sakramentið. Andinn mun vitna fyrir ykkur um himneskan föður og Jesú Krist. Hann mun hugga, leiða, aðvara og helga ykkur. Hann mun hjálpa ykkur að þekkja sannleikann og sjá hið góða í heiminum.

Spurningar og svör

Hvernig get ég vitað hvort ég sé að finna fyrir heilögum anda? Að læra að vera meðvitaður um andann krefst tíma, æfingar og þolinmæði. Hann talar til mismunandi fólks á mismunandi vegu. Horfið ekki fram hjá einföldum hlutum – þeirri friðsælu tilfinningu sem þið hljótið við að hlusta á vitnisburð einhvers eða óróleikatilfinningu sem þið hljótið eftir að hafa tekið ranga ákvörðun. Kannið ritningarnar til að finna mismunandi samskiptaleiðir andans, biðjist fyrir um þær og leitið áfram að tækifærum til að finna fyrir andanum.

Hvað er klám? Hvers vegna ætti ég að forðast það? Klám er framsetning, í myndum eða orðum, ætlað að vekja kynferðislegar tilfinningar. Klám á sér ýmis birtingarform, þar á meðal myndbönd, myndir, bækur, leikir og tónlist. Það geta líka verið skilaboð eða myndir sendar á milli vina. Klám meðhöndlar það sem er heilagt – líkama okkar og kynferðislegar tilfinningar – af virðingarleysi. Þið gætuð rekist á klám án þess að hafa ætlað ykkur það. Hvort sem þið rekist á klámefni af ásetningi eða ekki, snúið þá frá því strax. Þið gætuð einnig viljað tala við foreldri eða annan áreiðanlegan fullorðinn einstakling. Að skoða klámefni af ásettu ráði er syndsamlegt og skaðar getu ykkar til að skynja andann. Það veikir sjálfsstjórn ykkar og bjagar sjálfsmynd ykkar og hvernig þið sjáið aðra. Jesús Kristur hefur máttinn til að hjálpa ykkur að streitast á móti klámi og iðrast. Snúið ykkur að honum og snúið ykkur frá myrkri. Biskup ykkar getur hjálpað ykkur að taka á móti styrk og fyrirgefningu í gegnum frelsarann. Jesús Kristur er styrkur ykkar!

Sjá Sálmarnir 119:105 (orð Guðs er eins og ljós á vegum okkar); Amos 5:14 (leita hins góða); Galatabréfið 5:22–23 (ávextir andans); Moróní 7:18–19 (ljós Krists); Kenning og sáttmálar 6:23 (Drottinn veitir hugarró); 20:77, 79 (sakramentisbænirnar).

Musterismeðmælaspurning

  • Drottinn hefur sagt að allt skuli gert „í hreinleika“ frammi fyrir honum (Kenning og sáttmálar 42:41). Sækist þú eftir siðferðislegum hreinleika í hegðun og hugsun?