8.
Helgiathafnir og sáttmálar musterisins veita ykkur aukinn aðgang að blessunum Guðs
Sumar af blessunum himnesks föður eru svo heilagar að hann hefur boðið okkur að taka frá sérstaka, heilaga staði þar sem við getum tekið á móti þeim: musteri. Í musterinu, húsi Drottins, getið þið tekið á móti æðstu helgiathöfnum hans – musterisgjöfinni og innsigluninni – og hlotið æðri loforð hans.
Eilífur sannleikur
Musterisgjöfin er gjöf þekkingar og krafts. Í helgiathöfnum musterisgjafarinnar takið þið nafn frelsarans enn frekar á ykkur. Þið gerið sáttmála um að hlýða Guði, færa fórn til að gera vilja hans, lifa eftir fagnaðarerindi Jesú Krists, hlýða skírlífislögmálinu og helga – eða tileinka – kirkjunni líf ykkar og öllu því sem Guð hefur gefið ykkur. Þetta eru ykkar loforð. Guð lofar að blessa ykkur með meiri þekkingu, vernd og aðgangi að krafti hans. Hann lofar líka að gefa ykkur eilíft líf með sér. Sem hluta af musterisgjöfinni, hljótið þið þau helgu forréttindi að íklæðast klæðum hins heilaga prestdæmis. Musterisklæðin eru táknræn fyrir Jesú Krist og áminning um musterissáttmála ykkar.
Musterisinnsiglunin sameinar hjón og fjölskyldur um eilífð. Með helgiathöfn musterisinnsiglunar munuð þið og maki ykkar gera sáttmála við Guð og hvert annað. Þið lofið að vera algjörlega trú Guði og hvort öðru, að elska og þjóna hvort öðru og að vinna saman að því að halda lögmál Guðs. Þetta er loforð ykkar. Guð lofar að samband ykkar við maka ykkar og börn geti varað að eilífu. Hann lofar líka að þið getið hlotið æðstu dýrðina með honum í himneska ríkinu ef þið haldið sáttmála ykkar. Sú blessun er kölluð upphafning.
Boð
Hafið alltaf musterismeðmæli. Farið á fund meðlims biskupsráðs ykkar til að fá þau. Hann mun spyrja ykkur spurninga um hvernig þið lifið eftir stöðlum Drottins fyrir inngöngu í hans heilaga hús. Farið oft yfir þessar spurningar. (Þið getið fundið þær í viðauka þessa leiðarvísis.) Jafnvel þótt þið búið fjarri musteri, látið þá meðmæli ykkar vera táknræn fyrir elsku ykkar til Drottins og skuldbindingu ykkar um að lifa eftir stöðlum hans.
Farið í musterið eins oft og þið getið. Með musterismeðmælum ykkar getið þið farið í hús Drottins og verið skírð og staðfest fyrir áa ykkar, svo þeir geti hlotið þær blessanir sem ykkur hafa verið gefnar. Nýtið hvert tækifæri til að vera í musterinu. Leitið Drottins í húsi hans. Leitið hans í helgiathöfnunum, táknunum og andanum sem þið skynjið. Þið munið finna hann.
Búið ykkur undir að gera sáttmála í húsi Drottins. Ein besta leiðin til að gera það er að halda skírnarsáttmála ykkar. Gerið það að einu af ykkar leiðandi markmiðum að meðtaka helgiathafnir musterisins og að halda sáttmála ykkar alla ævi. Byrjið núna á því að lifa eftir því lögmáli sem þið lofið í musterinu: hlýðni við boðorð Guðs, fórn, fagnaðarerindi Jesú Krists, skírlífi og helgun. Fjölskylda ykkar, biskup og aðrir kirkjuleiðtogar geta hjálpað ykkur.
Fyrirheitnar blessanir
Þið getið orðið líkari Jesú Kristi. Hann mun hjálpa ykkur að verða betri fylgjandi réttlætisins. Helgiathafnir og sáttmálar musterisins munu kenna ykkur hvernig komast á í návist Guðs og hljóta eilíft líf með honum.
Þið verðið brynjuð krafti Guðs. Musterissáttmálum fylgir loforð um að kraftur og dýrð Guðs verði yfir ykkur. Englar hans munu vaka yfir ykkur.
Að verja tíma í musterinu mun tengja ykkur nánar við Jesú Krist og heilagan anda. Þið munið finna frið og hvíld Guðs. Þið munuð heyra rödd hans af meiri skýrleika. Himnarnir munu ljúkast upp fyrir ykkur og þið munið skilja betur leiðir hans. Þið munuð hafa meiri styrk til að takast á við áskoranir ykkar, því hjarta ykkar er tengt hans.
Spurningar og svör
Hvenær get ég hlotið musterisgjöfina? Ákvörðunin um að taka á móti musterisgjöf ykkar er persónuleg; takið þessa ákvörðun af kostgæfni. Ráðfærið ykkur við fjölskyldu ykkar og kirkjuleiðtoga. Til að fá musterisgjöfina þurfið þið að vera hið minnsta 18 ára og ekki lengur í menntaskóla eða framhaldsskóla. Þið munið hljóta musterisgjöf áður en þið þjónið í trúboði eða eruð innsigluð, en þið þurfið ekki að bíða eftir öðru hvoru áður en þið fáið musterisgjöf. Þið þurfið bara þrá og undirbúning til að gera og halda fleiri sáttmála við himneskan föður ykkar. Biskup ykkar eða greinarforseti getur hjálpað ykkur að vita hvort þið eruð tilbúin. Lítið ekki á musterisgjöfina sem verkefni á eilífðargátlista. Lítið á það sem fallegan og dýrðlegan hluta eilífrar ferðar ykkar að koma til Krists og hljóta æðstu andlegu blessanir Guðs.
Af hverju þarf ég musterismeðmæli til að fá inngöngu í musterið? Musterið er hús Drottins og hann setur staðlana fyrir inngöngu í það. Helgiathafnir og sáttmálar musterisins eru svo helg að þau krefjast sérstaks andlegs undirbúnings. Musterismeðmælaviðtalinu er ætlað að tryggja að þið séuð andlega undirbúin fyrir æðri forréttindi musterissáttmála. Himneskur faðir býður öllum börnum sínum að búa sig undir að gefa honum loforð í hans heilaga húsi.
Þarf ég að vera fullkomin/n til að gera musterissáttmála? Enginn er fullkominn. Guð biður ykkur að vera heiðarleg og fús til að halda boðorð sín. Að gera og halda sáttmála við Guð er það sem gefur ykkur kraft til að verða fullkomin fyrir Jesú Krist. Hann er styrkur ykkar!
Sjá Jesaja 2:2–3 (Guð kennir okkur sína hætti í musterinu); Matteus 11:28–30 (takið á ykkur ok frelsarans); 1. Nefí 14:14 (kraftur Guðs er yfir sáttmálsþjóð hans); Kenning og sáttmálar 97:15–16 (návist Guðs og dýrð hans eru í húsi hans); 109:22 (í musterinu erum við brynjuð krafti Guðs); 131:1–4; 132:4–6, 15–20 (til að hljóta eilíft líf verða karl og kona að vera innsigluð um alla eilífð með hinum nýja og ævarandi hjónabandssáttmála); Abraham 1:2 (Abraham vildi verða betri fylgjandi réttlætisins og öðlast meiri þekkingu).
Musterismeðmælaspurning
-
Telur þú þig verðuga/n þess að fara í hús Drottins og taka þátt í helgiathöfnum musterisins?