4.
Jesús Kristur mun hjálpa ykkur
Sálmarnir 147:3
Jesús Kristur er styrkur ykkar. Hann hefur gert allt sem nauðsynlegt er til að þið getið notið gleði í þessu lífi og að eilífu. Með því að velja hann og fagnaðarerindi hans eruð þið að velja eilífa hamingju og gleði.
Jafnvel þegar þið reynið að gera ykkar besta til að taka góðar ákvarðanir, verður manni stundum á. Þið munið gera hluti sem þið vilduð að þið hefðuð ekki gert. Það gera allir. Þegar það gerist er auðvelt að upplifa vonbrigði eða velta því fyrir sér hvort þið munið nokkurn tíma verða nógu góð. En það eru góðar fréttir – dásamlegar, vongóðar fréttir! Vegna þess að Guð elskar ykkur, sendi hann son sinn, Jesú Krist, sem tók á sig syndir ykkar svo þið getið iðrast, hlotið fyrirgefningu og haldið framþróun ykkar áfram.
Eilífur sannleikur
Jesús Kristur mun styrkja ykkur. Hann mun hjálpa ykkur að breyta þrám ykkar, hugsunum og verkum. Hann mun hughreysta ykkur þegar þið hafið áhyggjur, hræðist eða eruð á einhvern hátt í erfiðleikum. Hann mun hjálpa ykkur á öllum sviðum lífs ykkar. Þið getið treyst honum.
Iðrun er ekki refsing fyrir syndir; það er á þann veg sem frelsarinn frelsar okkur frá synd. Að iðrast þýðir að breytast – að láta af synd og snúa sér að Guði. Það merkir að bæta sig og hljóta fyrirgefningu. Slík breyting er ekki einstakur viðburður; hún er viðvarandi ferli.
Boð
Gerið Jesú Krist að þungamiðju lífs ykkar. Leitið hjálpar hans í öllu sem þið gerið.
Iðrist. Snúið ykkur til Drottins með þrá til að bæta ykkur. Þegar þið hafið gert eitthvað rangt, játið það þá einlæglega frammi fyrir Guði og, eins og þörf krefur, fyrir biskupi ykkar og hverjum þeim sem þið kunnið að hafa skaðað. Gerið ykkar besta til að bæta fyrir það.
Gleðjist yfir þeirri gjöf að gera betur og verða betri. Aldrei hætta að reyna, jafnvel þótt það sé ekki auðvelt og taki lengri tíma en þið viljið. Haldið áfram að vinna og treysta á Drottin. Hann mun aðstoða ykkur í hverju skrefi.
Fyrirheitnar blessanir
Himneskur faðir mun fyrirgefa og lækna ykkur er þið iðrist. Hann mun skipta sektarkennd ykkar út fyrir frið og gleði. Hann mun ekki muna muna syndir ykkar lengur. Jesús Kristur er styrkur ykkar og með styrk hans mun þrá ykkar til að halda boðorð hans aukast.
Hann mun breyta hjörtum ykkar og lífi. Smám saman munið þið vaxa og verða líkari honum.
Spurningar og svör
Hvernig veit ég hvort Guð hafi fyrirgefið mér? Guð lofar að hann muni fyrirgefa þeim sem iðrast. Þegar þið finnið huggun frá andanum, getið þið vitað að endurlausnarkraftur frelsarans er að virka í lífi ykkar.
Hvenær þarf ég hjálp biskupsins til að iðrast? Biskup ykkar hefur prestdæmislykla og hefur andlegar gjafir til að hjálpa ykkur að iðrast. Þið getið leitað hjálpar hans og ráðgjafar hvenær sem er. Ef þið hafið gert alvarleg mistök, eins og að brjóta skírlífislögmálið, ræðið þá við biskup ykkar. Hann mun ekki fordæma ykkur. Hann er fulltrúi Jesú Krists og mun hjálpa ykkur að vita hvernig á að iðrast að fullu og meðtaka græðandi og styrkjandi kraft frelsarans.
Ég reyni að iðrast en geri alltaf sömu mistökin. Hvað ætti ég að gera? Gefist ekki upp. Snúið ykkur til Krists og leggið traust ykkar á hann. Náð hans er nægileg. Reynið aftur. Þið eruð aldrei ein í þeirri viðleitni að bæta ykkur. Jesús Kristur er alltaf til staðar fyrir ykkur.
Sjá Enos 1:6 (það er hægt að sópa sekt í burtu); Mósía 4:3 (Guð lætur ykkur vita með heilögum anda að ykkur sé fyrirgefið); 26:30 (frelsarinn fyrirgefur eins oft og við iðrumst); Eter 12:27 (náð frelsarans getur gert hið veika að styrk); Moróní 6:8 (þeim sem iðrast er fyrirgefið); 10:32 (fullkomnist í Kristi); Kenning og sáttmálar 1:32 (Drottinn fyrirgefur þeim sem iðrast); 58:42–43 (iðrun felur í sér að játa og láta af synd).
Musterismeðmælaspurningar
-
Átt þú vitnisburð um friðþægingu Jesú Krists og hlutverk hans sem frelsara og lausnara þíns?
-
Eru einhverjar alvarlegar syndir í lífi þínu, sem þarfnast úrlausnar með valdhöfum prestdæmisins, sem hluti af iðrun þinni?