Taka innblásnar ákvarðanir
Í Til styrktar ungmennum finnið þið kenningar Jesú Krists og spámanna hans. Með þennan sannleika ykkur til leiðsagnar, getið þið tekið innblásnar ákvarðanir sem munu blessa ykkur nú og um alla eilífð.
Þið eruð ástkær andabörn Guðs. Hin mikla sæluáætlun hans gerir ykkur mögulegt að vaxa andlega og þróa ykkar guðlegu möguleika. Hann sendi Jesú Krist til að vera frelsari ykkar.
Faðir ykkar á himnum treystir ykkur. Hann hefur veitt ykkur miklar blessanir, þar á meðal fyllingu fagnaðarerindisins og helgiathafnir og sáttmála sem binda ykkur honum og færa kraft hans í líf ykkar. Þessum sáttmálum fylgir aukin gleði og ábyrgð. Hann veit að þið getið skipt sköpum í heiminum og það krefst í mörgum tilfellum þess að vera öðruvísi en heimurinn. Leitið leiðsagnar himnesks föður ykkar við að taka ákvarðanir. Hann mun blessa ykkur með innblæstri heilags anda.
Jesús Kristur er vegurinn til eilífrar gleði. Þegar þið notið frelsi ykkar til að velja að fylgja Jesú Kristi, eruð þið á veginum sem leiðir til eilífrar hamingju. Gerið Jesú Krist að ykkar staðli, bjargfastri undirstöðu ykkar. Byggið líf ykkar á kenningum hans og miðið ákvarðanir ykkar við þær. Sáttmálarnir sem þið gerið við skírn, meðan á sakramentinu stendur og í musterinu, eru byggingareiningarnar að öruggri undirstöðu ykkar í Kristi. Þrátt fyrir þetta munið þið takast á við erfiðleika og freistingar en himneskur faðir og frelsarinn munu hjálpa ykkur í gegnum það allt.
Tilgangur Til styrktar ungmennum er ekki að gefa ykkur „já“ eða „nei“ um alla mögulega valkosti sem þið gætuð staðið frammi fyrir. Drottinn býður ykkur þess í stað að lifa á æðri og helgari hátt – lífi sem hefur eilífan sannleika og fyrirheitnar blessanir Drottins að þungamiðju. Þetta er hans leið. Þessi leiðarvísir mun kenna ykkur um hans leið. Hann útskýrir sannleika sem hann hefur opinberað. Hafið þennan sannleika sem leiðarvísi ykkar að ákvarðanatökum – stórum ákvörðunum, eins og að gera sáttmála í musterinu og að þjóna í trúboði, sem og daglegum ákvörðunum, eins og hvernig koma skuli fram við fólk eða hvernig skuli verja tíma ykkar.
Þótt aðrir geti hjálpað ykkur, þá er andlegur vöxtur ykkar persónulegur. Hann er á ykkar ábyrgð. Gerið ykkar besta til að bæta ykkur dag hvern, halda boðorð Guðs og heiðra sáttmála ykkar og hjálpa öðrum að komast nær frelsaranum.
Sjá Mósía 4:29–30 (leiðirnar til að syndga eru óteljandi, við verðum því að gæta okkar); Helaman 5:12 (byggið undirstöðu ykkar á Kristi); Kenning og sáttmálar 45:57 (takið hinn heilaga anda ykkur til leiðsagnar); 25:13 (haldið fast við sáttmála ykkar).
Uppbygging þessa leiðarvísis
Hvert efnisatriði er í þremur hlutum:
-
Eilífur sannleikur eða kenning hins endurreista fagnaðarerindis Jesú Krists
-
Boð um að breyta eftir þessum sannleika
-
Fyrirheitnar blessanir sem Drottinn býður þeim sem lifa eftir kenningum hans