Endurnærist af orðinu, eftir Liz Lemon Swindle. Með leyfi Havenlight
11.
Sannleikurinn mun gera ykkur frjáls
Jóhannes 8:32
Himneskur faðir ykkar er Guð sannleikans. Hann veit allt. Allur sannleikur kemur frá honum og leiðir til hans. Þið sýnið að þið metið sannleikann verðleikum þegar þið leitist eftir lærdómi, lifið af ráðvendni og standið hugrökk fyrir það sem þið vitið að er rétt – jafnvel þótt þið þurfið að standa ein.
Eilífur sannleikur
Himneskur faðir vill að dætur hans og synir séu alltaf að læra. Þið hafið bæði stundlegar og andlegar ástæður til að sækjast eftir og hafa unun af lærdómi. Menntun snýst ekki bara um að afla tekna. Það er hluti af eilífu markmiði ykkar að verða líkari himneskum föður.
Að lifa lífinu af ráðvendni merkir að þið elskið það sem rétt er í augum Guðs – meira en persónuleg þægindi, vinsældir eða hentugleika. Það þýðir að gera það sem er rétt, einfaldlega vegna þess að það er rétt.
Þið hafið einhverju dýrmætu að miðla. Fagnaðarerindi Jesú Krists geymir svörin við spurningum lífsins. Það er vegurinn til friðar og hamingju. Þið vitið ef til vill ekki allt en þið vitið nægilega mikið til að elska náunga ykkar, miðla þeim sönnum reglum og bjóða þeim að læra meira.
Boð
Verið alltaf að læra. Leitið tækifæra til að víkka út huga ykkar og færni. Þessi tækifæri geta verið formleg menntun í skóla eða starfsþjálfun, sem og óformlegt nám hjá aðilum sem þið treystið. Hafið Drottin með í viðleitni ykkar og hann mun leiða ykkur.
Lærið andlegan sannleika. Þegar þið lærið um heiminn umhverfis, lærið þá líka um frelsarann sem skapaði heiminn. Lærið um líf hans og kenningar. Gerið trúarskólanám yngri og eldri deilda og persónulegt trúarnám að hluta af ævilöngu námi ykkar. Það getur búið ykkur undir að þjóna í trúboði og miðla fagnaðarerindinu alla ykkar ævi.
Lifið af ráðvendni. Ekki stela, ljúga, svindla eða blekkja á nokkurn hátt – í skólanum, á vinnustaðnum, á netinu, alls staðar. Verið sömu trúföstu fylgjendur Jesú Krists opinberlega og í einrúmi.
Fyrirheitnar blessanir
Menntun eykur getu ykkar til að þjóna Drottni, þar með talið sem trúboðar. Hún gerir ykkur kleift að blessa aðra, einkum fjölskyldu ykkar. Því meira sem þið lærið, því meira getið þið hjálpað við að byggja upp ríki Guðs og hafa áhrif á heiminn til góðs.
Heiðarleiki færir frið og sjálfsvirðingu. Þegar orð ykkar og gjörðir eru í samræmi við sannleikann, sýnið þið að aðrir og Drottinn geta treyst ykkur.
Þegar þið verjið málstað kenninga Jesú Krists stendur hann með ykkur. Jesús Kristur er styrkur ykkar! Aðrir eru kannski ekki sammála trú ykkar en það verður tekið eftir hugrekki ykkar og einlægni. Hvort sem aðrir fylgi fordæmi ykkar eða ekki, mun vitnisburður ykkar, traust og trú á Jesú Krist vaxa.
Spurningar og svör
Er rangt að hafa spurningar um kirkjuna? Hvernig get ég fundið svör? Að hafa spurningar er ekki merki um veikleika eða skort á trú. Staðreyndin er sú að það getur styrkt trú að spyrja spurninga. Endurreisn fagnaðarerindisins hófst þegar hinn 14 ára gamli Joseph Smith spurði spurninga í trú. Leitið svara í ritningunum, í orðum spámanna Guðs, hjá leiðtogum ykkar og trúföstum foreldrum og hjá Guði sjálfum. Ef svörin berast ekki strax, treystið þá á að þið munið læra setning á setning ofan. Haldið áfram að lifa eftir því sem þið þegar vitið og haldið áfram að leita að sannleika.
Hvernig get ég komið því til varnar sem rétt er án þess að móðga þá sem hafa aðrar skoðanir? Byrjið á því að ganga úr skugga um að orð ykkar og gjörðir séu innblásin af elsku til Guðs og barna hans. Að miðla fagnaðarerindinu ætti ekki að vera gert í anda sundrungar heldur frekar af skýrleika, hógværð og góðvild. Þið getið sýnt öðrum kærleika jafnvel þótt þið séuð ekki sammála skoðunum þeirra. Verið góð fyrirmynd um fylgjanda Jesú Krists með líferni ykkar.
Sjá Matteus 5:14–16 (látið ljós ykkar skína); Jóhannes 14:6 (Jesús er sannleikurinn); 1. Pétursbréf 3:15 (verið alltaf reiðubúin til að miðla von ykkar á Krist); Kenning og sáttmálar 88:77–80 (það sem Drottinn vill að við lærum); 88:118 (leitið vísdómsorða í hinum bestu bókum); 93:36 (dýrð Guðs er vitsmunir); 124:15 (ráðvendni þýðir að elska það sem rétt er); 130:18 (vitsmunastig okkar mun fylgja okkur í upprisunni).
Musterismeðmælaspurningar
-
Ástundar þú heiðarleika í allri þinni breytni?
-
Styður þú eða kynnir einhverjar kenningar, háttsemi eða hugmyndir sem andstæðar eru kenningum Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu?