Ungmenni
Orðsending frá Æðsta forsætisráðinu


Orðsending frá Æðsta forsætisráðinu

Kæru ungu bræður og systur,

Okkur þykir vænt um ykkur og við höfum trú á ykkur. Þið eruð sannarlega meðal útvalinna anda himnesks föður, send til jarðarinnar á þessum tíma til að gera mikilvæga hluti.

Þið eruð sterkari og hæfari en þið gerið ykkur grein fyrir. Og þegar þið reiðið ykkur á frelsarann, þá mun styrkur ykkar vaxa enn meira. Hann er „styrkur ungmenna“.

Þessi leiðarvísir mun hjálpa ykkur að byggja traustan grunn til að taka ákvarðanir um að halda ykkur á veginum sem leiðir til eilífs lífs. Hann mun hjálpa til við að undirbúa ykkur fyrir að gera heilaga sáttmála í musterinu, búa ykkur undir að þjóna í trúboði og finna gleði er þið fylgið Jesú Kristi í lífinu. Þið gegnið mikilvægu hlutverki í kirkju hans. Jesús Kristur mun hjálpa ykkur að uppfylla þann tilgang sem hann ætlar ykkur.

Við vitum að Guð lifir. Það er bæn okkar að þið munið halda ykkur staðfastlega á sáttmálsveginum – veginum að gera og halda helga sáttmála við Guð. Það er vegurinn sem liggur aftur til föður ykkar á himnum. Þegar þið gerið það, munuð þið hafa áhrif til góðs, miðla fagnaðarerindinu af gleði, safna saman börnum Guðs og búa heiminn undir síðari komu frelsarans. Munið: Jesús Kristur er styrkur ykkar!

Æðsta forsætisráðið