3.
Þið getið hjálpað við verk Guðs
Himneskur faðir elskar öll börn sín. Hann vill hjálpa þeim að finna hamingju og gleði, snúa aftur til sín og öðlast eilíft líf. Þetta er kallað verk hans til sáluhjálpar og upphafningar og hann býður ykkur að hjálpa!
Eilífur sannleikur
Verk Guðs og dýrð er að gera ódauðleika og eilíft líf ykkar að veruleika. Ódauðleiki er ævarandi líf í upprisnum líkama. Eilíft líf, eða upphafning, er að verða líkari Guði og lifa með honum að eilífu sem fjölskyldur. Allt er þetta mögulegt vegna Jesú Krists og friðþægingar hans. Þið getið treyst honum.
Þið getið hjálpað við verk Guðs með því að koma til Krists og hjálpa öðrum að gera slíkt hið sama. Í hvert skipti sem þið gerið eitthvað til að hjálpa einhverjum að fylgja Jesú Kristi, eruð þið að hjálpa við verk Guðs.
Boð
Lifið eftir fagnaðarerindinu. Byggið trú ykkar á Jesú Kristi. Iðrist daglega. Takið á móti helgiathöfnum prestdæmisins og haldið sáttmála ykkar. Gerið það að forskrift að því sem eftir er af lífi ykkar.
Annist hina þurfandi. Finnið leiðir til að þjóna öðrum, þar með talið fjölskyldu ykkar, vinum ykkar og samfélagi. Ein góð leið til að hjálpa fólki í neyð er að hlýða föstulögmálinu og gefa föstufórnir.
Bjóðið öllum að taka á móti fagnaðarerindinu. Látið orð ykkar og gjörðir endurspegla trú ykkar á Jesú Krist. Verið reiðubúin að segja hverjum þeim frá, sem spyr ykkur um vonina og hamingjuna sem þið eigið sem lærisveinar hans. Fyrir pilta er prestdæmisábyrgð að þjóna í fastatrúboði. Fyrir stúlkur er það máttugt tækifæri; biðjist fyrir til að vita hvort Drottinn vilji að þið þjónið. Búið ykkur undir að miðla fagnaðarerindinu alla ykkar ævi.
Sameinið fjölskyldur um eilífð með því að vinna að ættarsögu og gera musterisverk. Lærið um áa ykkar. Komist að því hver þarf á helgiathöfnum musterisins að halda. Farið í musterið eins oft og þið getið til að skírast og verða staðfest fyrir þau. Ef þið þurfið hjálp, farið þá á FamilySearch.org.
Fyrirheitnar blessanir
Þið munuð njóta hjálpar Guðs. Himneskur faðir væntir þess ekki að þið vinnið þetta verk einsömul. Hann er með ykkur. Þegar þið bjóðið auðmjúklega fram tíma ykkar og hjörtu, mun hann gera ótrúlega hluti í gegnum ykkur. Jesús Kristur er styrkur ykkar!
Þið munið fyllast gleði. Verk Guðs er gleðilegt verk! Þegar þið takið þátt í því, getið þið fundið þá gleði sem hann finnur. Ímyndið ykkur gleðina sem þið munið deila með himneskum föður og börnunum hans sem þið hjálpuðuð að nálgast hann!
Spurningar og svör
Getur Guð raunverulega notað mig í verki sínu? Já! Það er hægt að hjálpa við verkið á marga vegu. Það gæti virst sem aðrir séu hæfileikaríkari eða flinkari, en himneskur faðir ykkar sér möguleika ykkar. Hann hefur gefið ykkur gjafir sem þið getið notað til að þjóna og safna saman börnum hans. Það er í lagi að þessar gjafir séu öðruvísi en annarra. Reyndar er það einmitt þess vegna sem gjafir ykkar eru svo verðmætar. Það er þörf fyrir ykkur!
Sjá Matteus 10:39 (ef þið týnir lífi ykkar í þjónustu frelsarans, munuð þið finna það); 1. Korintubréf 12:14–27 (allir limir eru nauðsynlegir í líkama Krists); Filippíbréfið 1:6 (treystið því að Guð er að verki í ykkur); Jakob 5:72 (herra víngarðsins vinnur með ykkur); Kenning og sáttmálar 18:15–16 (mikil verður gleði ykkar með þeim sem þið leidduð til Krists); 64:33–34 (mikið verk sprettur af hinu smáa og einfalda); HDP Móse 1:6 („Ég ætla [ykkur] verk að vinna“); 6:31–34 (Guð gerir þá hæfa sem hann kallar, jafnvel þótt þeim finnist þeir vanhæfir).
Musterismeðmælaspurning
-
Átt þú vitnisburð um endurreisn fagnaðarerindis Jesú Krists?