Leita Krists og sáttmála: Lyklar Nefís að lestri Gamla testamentisins
Nefí miðlaði nokkrum ábendingum sem geta hjálpað ykkur í námi ykkar.
Ímynd Krists, eftir Heinrich Hofmann, birt með leyfi C. Harrison Conroy Co., Inc.
Ég nýt þess að lesa Gamla testamentið Í áranna rás hef ég uppgötvað tvo lykla til að leita að í Gamla testamentinu til að færa gleði og auka skilning: Krist og sáttmála.
Hér eru nokkrar leiðir til að finna Krist og sáttmála í námi okkar í Gamla testamentinu á þessu ári.
Leita Krists
Nefí, sem las ritningarnar af látúnstöflunum, sagði: „Sjá. Sál mín hefur unun af að sanna þjóð minni sannleikann um komu Krists, því að í þeim tilgangi var lögmál Móse gefið, og allt, sem Guð hefur gefið manninum frá upphafi veraldar, er táknrænt um hann“ (2. Nefí 11:4).
Við getum fundið Jesú Krist í Gamla testamentinu á marga vegu.
Móse og eirormurinn, eftir Judith A. Mehr; Kristur á krossinum, eftir Carl Heinrich Bloch
Guð Gamla testamentisins
Þar sem við vitum gegnum nútíma opinberun að Jesús Kristur er Guð Gamla testamentisins (sjá Kenning og sáttmálar 110:3–4), getum við séð mátt hans í sköpuninni og sem löggjafa á Sínaífjalli, sem kennir Ísrael hvernig á að verða eins og Guð. Við lærum um náð hans í endurlausn ánauðarinnar í Egyptalandi, elsku hans í umönnun fólks síns í óbyggðunum og björgun þess til fyrirheitna landsins og stöðugrar umhyggju hans með því að senda spámenn og bjóða Ísrael fyrirgefningu er fólkið iðraðist synda sinna.
Líkingar um Jesú Krist
Í sögum Gamla testamentisins er að finna margar líkingar (eða birtingarmyndir) um Jesú Krist og margar hverjar segja fyrir um framtíð hans, eins og skráð er í Nýja testamentinu og Mormónsbók. Sagan um Abraham og Ísak er líkingarmynd Guðs föðurins að fórna syni sínum, Jesú Kristi. Jósef bjargaði bræðrum sínum frá líkamlegri hungursneyð, á sama hátt og Jesús Kristur bjargar okkur frá andlegri hungursneyð. Móse frelsaði fólk sitt úr ánauð á sama hátt og Jesús frelsar okkur frá synd. Drottinn kenndi Ísraelsmönnum um mátt trúar á hann og friðþægingu hans í sögunni um eirorminn í eyðimörkinni. Elía og Elísa voru fordæmi um frelsarann, er þeir læknuðu sjúka og reistu upp dauða.
Abraham og Ísak, eftir Harold Copping, © Look and Learn/Bridgeman Images
Ábendingar varðandi frelsara Nýja testamentisins
Jesús Kristur er táknrænt í sögunum í Gamla testamentinu og í Móselögmálinu. Sögurnar um páskahátíðina og fórnir í Móselögmálinu vísa á Krist. Spámenn Gamla testamentisins vísuðu til hlutverks Jesú, er þeir læknuðu sjúka og reistu upp dauða. Drottinn lofaði okkur „nýjum sáttmála“ fyrir milligöngu spámannsins Jeremía (Jeremía 31:31; sjá einnig vers 32).
Í Nýja testamentinu kemur Jesús sem uppfylling lögmálsins og spámannanna í Gamla testamentinu. Hann kom fram með nýja sáttmálann í fjallræðunni og innleiddi tákn sáttmálans við páskamáltíðina í síðustu kvöldmáltíðinni. Jesús kenndi okkur að elska og þjóna hvert öðru, er hann læknaði sjúka og reisti upp dauða. Hann leysti okkur frá synd og dauða með friðþægingu sinni og stofnaði kirkju sína á jörðu. Þegar við viðurkennum Jesú sem Guð Gamla testamentisins, getum við skilið hann betur í Nýja testamentinu.
Leita sáttmála
Nefí kenndi okkur líka að leita að sáttmálum í ritningunum: „Og sál mín hefur einnig unun af sáttmálunum, sem Drottinn gjörði við feður okkar“ (2. Nefí 11:5).
Russell M. Nelson forseti hefur einnig lagt áherslu á mikilvægi sáttmála. Hann sagði: „Mesta hrósið sem hægt er að ávinna sér í þessu lífi er að vera kunnur fyrir að halda sáttmála sína. Umbun þess sem heldur sáttmálann verður að veruleika bæði hér og hér eftir.“
Hve undursamlegt loforð! Jafnvel eftir að hafa skírst og gert musterissáttmála, gerum við okkur kannski ekki grein fyrir hversu mikil áhrif þessi loforð geta haft á daglegt líf okkar til hins betra. Gamla testamentið minnir okkur á hvað það þýðir í raun að vera „sáttmálslýður“ og hvernig við getum betur skilið blessanirnar og ábyrgðina sem því fylgir.
Helsti sáttmálinn sem minnst er á í Gamla testamentinu er sáttmáli Abrahams. Við getum fundið sannleika um fagnaðarerindi Jesú Krists í þessum sáttmála, sem leiðir okkur til Jesú Krists, sem við finnum hjálpræðið í.
Hér er nokkuð af því sem Gamla testamentið hjálpar okkur að skilja betur og halda sáttmála okkar.
Skilja hlutverk okkar í sáttmála Abrahams
Sáttmáli Abrahams var röð loforða og blessana sem Abraham voru gefin sem haldast allt til þessa dags í hinum „nýja og ævarandi sáttmála“ sem spámaðurinn Joseph Smith endurreisti (sjá Kenning og sáttmálar 132:30–31). Nelson forseti kenndi:
„Drottinn [birtist] á síðari dögum til að endurnýja sáttmálann við Abraham. Meistarinn sagði við spámanninn Joseph Smith:
‚Abraham fékk fyrirheit varðandi niðja sína og ávöxt lenda sinna – þeirra lenda sem þú, já, þjónn minn Joseph, ert kominn af. …
Þetta fyrirheit er einnig yðar vegna þess að þér eruð af Abraham‘ [Kenning og sáttmálar 132:30–31].“
Með þeim sáttmála skapaði Drottinn réttláta fjölskyldu, þar sem hann gat kennt fagnaðarerindi sitt og leitt börn sín til Jesú Krists. Páll postuli kenndi að ef við komum til Krists, verðum við hluti af fjölskyldu Abrahams: „Ef þið eruð í samfélagi við Krist þá eruð þið niðjar Abrahams og erfið það sem honum var heitið“ (Galatabréfið 3:29; sjá einnig vers 27). Gegnum sáttmála Abrahams, verða meðlimir Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu Ísraelsættar og erfingjar blessana sáttmála Abrahams.
Við getum lært um hlutverk okkar í sáttmálanum með því að skoða líf þeirra sem eru í Gamla testamentinu, með því að kanna loforðin sem Drottinn gaf börnum sínum í boðorðunum og með því að hlusta á forna spámenn sem brýndu fyrir Ísraelsmönnum að iðrast og hlýða sáttmálum sínum.
Finna fyrirheitnar blessanir fyrir tilstilli sáttmála okkar
Þegar við lesum Gamla testamentið, getum við leitað vísbendinga um að Drottinn stendur við loforðin sem gefin voru í sáttmála Abrahams. Þrjár mest áberandi blessanirnar eru land, sem táknar arfleifð í ríki himnesks föður; niðjar, sem er fyrirheit um eilífa aukningu; og blessanir fagnaðarerindisins og prestdæmisins, „sem eru blessanir sáluhjálpar, já, eilífs lífs“ (Abraham 2:11).
Abraham var lofað að gegnum niðja hans myndu „allar ættkvíslir jarðarinnar … af þér blessun hljóta“ (1. Mósebók 12:3). Þetta þýddi að Jesús Kristur myndi koma í heiminn gegnum ætt Abrahams og blessa allar þjóðir jarðar fyrir friðþægingu sína og upprisu (sjá Galatabréfið 3:16).
Hluti af Getsemane, eftir J. Kirk Richards, afritun óheimil
Hvaða blessanir sjáið þið í lífi ykkar í dag vegna sáttmála Abrahams?
Skylda til samansöfnunar Ísraels
Að vera hluti af sáttmála Abrahams, fylgir ákveðin ábyrgð, ásamt blessunum. Með því að læra Gamla testamentið, lærum við hvernig lifa á eftir sáttmálum okkar. Sem fjölskylda Abrahams, eru meðlimir kirkjunnar kallaðir til að safna saman Ísrael. Þegar við tökum þátt í trúboðsstarfi, hirðisþjónustu, musterisverki, kirkjuköllunum og kennslu og uppeldi barna okkar, söfnum við Ísrael saman með því að færa aðra nær Kristi.
Nelson forseti sagði: „Alltaf þegar þið gerið eitthvað til hjálpar einhverjum – hvoru megin hulunnar sem er – að taka skref í átt að því að gera sáttmála við Guð og taka á móti hinum mikilvægu helgiathöfnum skírnar og musteris, eruð þið að hjálpa við samansöfnun Ísraels.“
Læra að elska Gamla testamentið
Þegar þið lesið Gamla testamentið fyrir nám okkar í Kom, fylg mér á þessu ári, getið þið lært að elska kenningar þess með því að fylgja því fordæmi Nefís að leita að þessum tveimur þemum: Kristi og sáttmálum. Þá getið þið betur skilið Jesú Krist, friðþægingu hans og fagnaðarerindi hans. Þið getið líka lært meira um „hinn nýja og ævarandi sáttmála“ og hlutverk ykkar í honum sem lærisveinar Krists og meðlimir Ísraelsættar.
Sögurnar og kenningarnar í Gamla testamentinu geta hjálpað okkur að dýpka samband okkar við frelsarann og aukið skilning okkar og skuldbindingu gagnvart sáttmálum okkar.