„Hluttakendur í guðlegu eðli,“ Líahóna, jan. 2026.
Hluttakendur í guðlegu eðli
(2. Pétursbréf 1:4)
Þekking á sáluhjálparáætluninni veitir dýrmæta innsýn, auðgar gleði okkar og styrk til að sigrast á áskorunum okkar og mótlæti.
Kristur kallar tvo lærisveina, eftir Gary E. Smith
Pétur postuli minnir okkur á að fyrir lærisveina Jesú Krists, hefur hann „með guðlegum mætti sínum … gefið okkur allt sem þarf til lífs í guðrækilegri breytni, með þekkingunni á honum sem hefur kallað okkur með dýrð sinni og dáð.
Með því hefur hann veitt okkur dýrmæt og háleit fyrirheit sem fela í sér að þið … verðið hluttakendur í guðlegu eðli“ (2. Pétursbréf 1:3–4; skáletrað hér).
Áætlun himnesks föður lýsir hinum dýrmæta og stórkostlega sannleika og fyrirheitum sem skilgreina eilífa sjálfsmynd okkar og tilgang.
Eins og útskýrt er í „Fjölskyldan: Yfirlýsing til heimsins“:
„Allar mannlegar verur ‒ karlar og konur ‒ eru skapaðar í mynd Guðs. Hver þeirra er ástkær andasonur eða dóttir himneskra foreldra, og sem slík á sérhvert þeirra guðlegt eðli og örlög. …
Í fortilverunni þekktu og tilbáðu andasynir og dætur Guðs hann sem eilífan föður og samþykktu áætlun hans, en samkvæmt henni gátu börn hans hlotið efnislíkama og öðlast jarðneska reynslu til að feta í átt að fullkomnun og að lokum gera að veruleika guðleg örlög sín sem erfingjar eilífs lífs.“
Himneskur faðir lofar börnum sínum, að ef þau fylgja kenningum áætlunar hans og fordæmi hans ástkæra sonar, halda boðorðin og standast stöðug allt til enda, munu þau „öðlast eilíft líf, en sú gjöf er mest allra gjafa Guðs“ (Kenning og sáttmálar 14:7).
Verk Guðs beinist að framþróun og upphafningu barna hans. Sérhver þáttur áætlunar hans er gerður til að blessa syni hans og dætur, því „verðmæti sálna er mikið í augum [hans]“ (Kenning og sáttmálar 18:10).
Áætlun föðurins
Á stórþingi fortilverunnar kynnti himneskur faðir andabörnum sínum áætlun sína um eilífa framþróun þeirra og hamingju.
„Við munum gjöra jörð, sem þessir geta dvalið á –
Og með þessu munum við reyna þá og sjá hvort þeir gjöra allt, sem Drottinn Guð þeirra býður þeim–
Og þeim, sem standast fyrsta stig sitt, mun bætast meira. En þeir, sem ekki standast fyrsta stig sitt, munu ekki njóta dýrðar í sama ríki og þeir, sem standast fyrsta stig sitt. Og þeim, sem standast annað stig sitt, mun bætast dýrð við dýrð alltaf og að eilífu.
Og Drottinn sagði: Hvern á ég að senda? Og einn svaraði, líkur mannssyninum: Hér er ég, send mig. Og annar svaraði og sagði: Hér er ég, send mig. Og Drottinn sagði: Ég mun senda þann fyrsta.
Og hinn varð reiður og stóðst ekki fyrsta stig sitt, og á þeim degi fylgdu margir á eftir honum“ (Abraham 3:24–28).
Takið eftir að einungis ein áætlun var lögð fram á fortilveruþinginu – áætlun föðurins. Himneskur faðir lagði ekki fram spurninguna: „Hvað eigum við að gera?“ Hann leitaði ekki eftir áliti, tillögum eða ábendingum. Hann kynnti öllu heldur grunnatriði áætlunar sinnar og spurði: „Hvern á ég að senda?“ Kjarni spurningar hans snerist um hvern senda ætti til að framfylgja skilmálum og skilyrðum áætlunar hans.
Afleiðingum uppreisnar andstæðingsins er einnig lýst í ritningunum.
„Og vegna þess að Satan reis gegn mér og reyndi að tortíma sjálfræði mannsins, sem ég … hafði gefið honum, og vildi einnig, að ég gæfi sér minn eigin kraft, lét ég varpa honum niður. …
Og hann varð Satan, … djöfullinn, faðir allra lyga, til að blekkja og blinda alla mennina og leiða þá ánauðuga að vilja sínum, já, alla þá, sem ekki hlýða á rödd mína“ (HDP Móse 4:3–4; skáletrað hér).
Lúsífer lagði ekki fram áætlun sem meirihluti þátttakenda á stórþingi fortilverunnar hafnaði. Hann er ekki skilningsríkur einstaklingur sem tapaði kosningum. Hann gerði uppreisn! Dramb, hroki og eigingirni voru hvati hans gegn áætlun föðurins.
Áætlun föðurins og fagnaðarerindi frelsarans
Áætlunin lýsir því verki föðurins og sonarins, sem gerir öllu mannkyni mögulegt að hljóta blessanir eilífs lífs.
Fagnaðarerindi Jesú Krists er leið okkar til að hljóta þær blessanir sem lofaðar eru í áætlun Guðs, já, kenninguna, reglurnar, helgiathafnirnar og sáttmálana sem karlar og konur verða að trúa á og fylgja. „Ekkert annað nafn er gefið undir himninum, sem frelsað getur manninn, en nafn Jesús Krists“ (2. Nefí 25:20). Sannlega er Drottinn Jesús Kristur „vegurinn, sannleikurinn og lífið. Enginn kemur til föðurins, nema fyrir [hann]“ (Jóhannes 14:6; skáletrað hér).
Russell M. Nelson forseti útskýrði:
„Áætlunin krafðist sköpunarinnar, sem svo aftur krafðist bæði fallsins og friðþægingarinnar. Þetta eru hinir þrír meginþættir áætlunarinnar. Sköpun paradísarplánetu kom frá Guði. Jarðlífið og dauðinn komu í heiminn með falli Adams [sjá 2. Nefí 2:25; HDP Móse 6:48]. Ódauðleiki og möguleiki eilífs lífs voru veitt með friðþægingu Jesú Krists [sjá 2. Nefí 2:21–28]. …
Við komum til jarðar í stutta stund, stöndumst prófraunir okkar og raunir og búum okkur undir að halda áfram og upp á við til dýrðlegrar heimkomu [sjá Sálmarnir 116:15; Alma 42:8]. Hugsanir okkar og verk [í jarðlífinu] verða vissulega markvissari, ef við skiljum áætlun Guðs og erum þakklát fyrir og hlýðin boðorðum hans [sjá Kenning og sáttmálar 59:20–21].“
Heiti áætlunarinnar í Mormónsbók
Við lærum mikilvægan sannleika með því að bera kennsl á og læra um hin mörgu mismunandi heiti áætlunar föðurins í Mormónsbók: Annars vitnis um Jesú Krist. Íhugið til dæmis eftirfarandi valin dæmi um heiti:
„Hin miskunnsama áætlun skaparans mikla“ (2. Nefí 9:6).
„Áætlun Guðs vors“ (2. Nefí 9:13).
„Sáluhjálparáætlunin“ (Jarom 1:2; Alma 24:14).
„Endurlausnaráætlunin“ (Alma 12:25, 26, 30, 32, 33; 42:11, 13).
„Áætlun um endurreisn“ (Alma 41:2).
„Sæluáætlunin“ (Alma 42:16).
„Hin mikla áætlun miskunnarinnar“ (Alma 42:31).
Hvert þessara heita hjálpar okkur að skilja betur hin dýrmætu loforð áætlunar föðurins og auðgar skilning okkar á tilgangi og merkingu okkar jarðneska lífs.
Athyglisvert er að algengasta heiti áætlunar Guðs í Mormónsbók tekur mið af endurlausninni sem gerð er möguleg með friðþægingu Jesú Krists.
Alma lýsti yfir: „Án endurlausnaráætlunarinnar, sem lögð var við grundvöllun veraldar, hefði engin upprisa dauðra getað átt sér stað. En endurlausnaráætlunin var lögð fram, sem gjöra skal þá upprisu dauðra að veruleika“ (Alma 12:25).
Hann áminnti líka: „Farið að trúa á son Guðs, að hann komi til að endurleysa fólk sitt, og að hann muni þjást og deyja til að friðþægja fyrir syndir þess. Að hann muni aftur rísa frá dauðum, sem gjörir upprisuna að veruleika, að allir menn muni standa frammi fyrir honum og verða dæmdir á efsta og dómsins degi eftir verkum sínum“ (Alma 33:22).
Vegurinn er ruddur
Sálir okkar ættu að þenjast út af þakklæti er við hugleiðum hina miklu áætlun Guðs um sáluhjálp, endurlausn, endurreisn, miskunn og hamingju. Þekking á áætlun hans veitir dýrmætan skilning, auðgar gleði okkar og styrkir okkur til að sigrast á áskorunum okkar og mótlæti.
Himneskur faðir þráir að við snúum aftur heim til hans. Hann býður blessanir og lofar blessunum, en hann mun aldrei þvinga, neyða eða hefta notkun þess siðferðislega sjálfræðis sem hann gaf okkur. Við verðum að sýna frumkvæði og velja að snúa aftur til hans með því að fylgja fordæmi hans ástkæra sonar.
Hönd hans er enn útrétt, eftir Elizabeth Thayer
„Vegurinn er ruddur, og ef við lítum upp, þá munum við lifa að eilífu“ (Alma 37:46; skáletrað hér).
Ég ber gleðilegt vitni um að himneskur faðir er höfundur hinnar guðlegu áætlunar fyrir börn sín. Jesús Kristur er frelsari okkar og lausnari. Sem einn af síðari daga postulum Drottins, ber ég vitni um að hann er vissulega „vegurinn, sannleikurinn og lífið“ (Jóhannes 14:6; skáletrað hér).