„Öryggi í hinu endurreista fagnaðarerindi Jesú Krists,“ Líahóna, jan. 2026.
Sáttmálskonur
Öryggi í hinu endurreista fagnaðarerindi Jesú Krists
Leiðin til að snúa aftur til Guðs er greinilega merkt, ef við höfum trú og traust á frelsara okkar.
Vegna fallins eðlis okkar og aðstæðna í jarðlífinu, eigum við það öll til að reika frá þeim Guði sem við þekktum og elskuðum í fortilveru okkar. Það er eðli jarðlífsins. Hann hefur því séð okkur fyrir leiðum til að halda okkur öruggum nærri sér, til að innsigla hjörtu okkar honum og hjálpa okkur að komast eins klakklaust gegnum þetta jarðneska sprengjusvæði og hægt er.
Í heimsstyrjöldunum miklu faldi herinn jarðsprengjur eða sprengiefni í jörðu. Svæðin með földum jarðsprengjum voru stór og her gæti óafvitandi farið inn á þau og verið sprengdur í loft upp.
Eftir stríðin voru þúsundir ósprunginna jarðsprengja eftir og margir, þar á meðal börn, misstu líf sitt eða útlimi þegar þau fóru óafvitandi inn á jarðsprengjusvæðin. Samtök sem leggja áherslu á að finna og merkja sprengjurnar á þessum svæðum hafa bjargað mörgum mannslífum.
Jarðlífið er eins og jarðsprengjusvæði. Andstæðingurinn er mjög góður í því að fela hættur og láta þær líta út fyrir að vera meinlausar og aðlaðandi, eins og fallegt engi. Hann hefur þúsundir ára reynslu af þessu. Hann er sérfræðingur í að láta leiðir líta út fyrir að vera aðlaðandi sem leiða til hættulegra niðurstaðna og sorgar.
Leidd örugg heim
Faðir okkar á himnum veit hvernig á að vernda okkur og hefur markað leiðina til að leiða okkur örugg heim. Auðvitað eru ótal hættur og erfiðleikar sem eru hluti af jarðneskri reynslu okkar. Við getum þó forðast val sem gæti leitt til óþarfa byrða og sorgar.
Þess vegna hefur faðirinn gefið okkur boðorð, gjöf heilags anda, spámenn okkur til leiðsagnar og máttugt sáttmálssamband við sig og frelsara okkar í gegnum helgiathafnir og sáttmála musterisins. Það er einungis hér, í hinni endurreistu kirkju Jesú Krists, sem við finnum öll þessi máttugu merki og öryggi sem geta leiðbeint okkur klakklaust heim.
Það felst mikil blessun í því að hafa nútíma spámenn. Hugh B. Brown forseti (1883–1975), fyrrum ráðgjafi í Æðsta forsætisráðinu, sagði frá samtali sem hann átti við meðlim í neðri deild breska þingsins, sem áður hafði verið dómari. Þessi maður sagðist halda að Guð hefði ekki talað við fólk á jörðinni frá því á fyrstu öld og Brown forseti brást við með því að útskýra fyrir honum Joseph Smith og endurreisnina.
„Dómarinn sat og hlustaði af athygli,“ minntist Brown forseti. „Hann spurði nokkurra mjög beinskeyttra og leitandi spurninga og í lok viðtalsins sagði hann: ‚Herra Brown, ætli fólk kynni að meta þennan mikilvæga boðskap þinn? Gerir þú það? … Ef það sem þú hefur sagt mér er sannleikur, þá er það mikilvægasti boðskapur sem komið hefur til jarðar frá því að englarnir kunngjörðu fæðingu Krists.‘“
Guð kallar spámenn af því að hann elskar börn sín. Fyrir tilstilli þjóna sinna, spámannanna, hefur hann opinberað sáluhjálparáætlun sína, sæluáætlun sína, til að leiðbeina börnum sínum. Drottinn sýnir spámönnum, sjáendum og opinberurum hluti sem aðrir fá ekki séð. Þeir eru varðmenn í turninum (sjá Esekíel 33:1–7), sem geta séð fjarska langt og hljómað sem viðvörun öllum sem vilja hlusta, oft með margra ára fyrirvara. Þeir hafa víðsýni sem við höfum ekki vegna samskipta þeirra við Guð sem réttmætir þjónar hans. Það er mjög mikilvægt að við öðlumst öll djúpan, persónulegan vitnisburð um núverandi spámenn, sjáendur og opinberara.
Sannleikur í Jesú Kristi
Það er stöðugt erfiðara að greina sannleika í heimi okkar tíma. Það eru svo margar raddir sem koma úr svo mörgum áttum – Instagram, TikTok, Facebook, X, hlaðvarpsþáttum, kapalfréttum og svo framvegis. Nú þegar gervigreind er komin á vettvang, er enn erfiðara að greina hvað er sannleikur og hvað ekki – eða jafnvel hvað er raunverulegt! Sviksöm djúpfölsuð myndbönd geta látið líta út fyrir að einhver hafi sagt eða gert eitthvað sem ekki er rétt. Það verður ákaflega erfitt á komandi árum að greina sannleika frá lygi.
Á sinni fyrstu ráðstefnu sem forseti kirkjunnar, í apríl 2018, kenndi Russell M. Nelson forseti:
„Ég er bjartsýnn varðandi framtíðina. … Ég er þó ekki ugglaus yfir komandi tíð. Við lifum í heimi sem er flókinn og stöðugt þrætugjarnari. Hin stöðuga viðvera samfélagsmiðla og fréttir allan sólarhringinn, láta vægðarlaust dynja á okkur allskyns skilaboðum. Ef okkur á einhvern veginn að takast að sjá í gegnum ógrynni radda og hugmyndafræði manna sem gera aðför að sannleikanum, verðum við að læra að meðtaka opinberun.
Frelsari okkar og lausnari, Jesús Kristur, mun framkvæma einhver sinna máttugustu verka, frá þessum tíma fram að endurkomu sinni. Við munum sjá undursamlegar vísbendingar um að Guð faðirinn og sonur hans, Jesús Kristur, ríkja yfir þessari jörðu í hátign og dýrð. Á komandi tíð verður hins vegar ekki mögulegt að komast af andlega, án þess að njóta handleiðslu og huggunar og stöðugra áhrifa heilags anda. …
Ég hvet ykkur eindregið til að auka andlegt atgervi ykkar til að hljóta opinberun. … Ákveðið að takast á við hið andlega verk sem þarf til að fá notið gjafar heilags anda og heyrt betur og oftar rödd andans.“
Í Bók Amos 3:7 í Gamla testamentinu lesum við: „Því að Drottinn Guð gerir ekkert án þess að opinbera fyrirætlun sína fyrir þjónum sínum, spámönnunum.“ Eftir því sem raddir heimsins verða háværari og meira sannfærandi, þurfum við öll að geta heyrt hina hljóðu rödd andans oftar og skýrar, svo við hlýðum á og fylgjum leiðsögn Drottins með lifandi spámönnum.
Guð elskar öll börn sín
Bæði í Nýja testamentinu og Mormónsbók lesum við að Guð sé hinn sami í gær, í dag og um eilífð (sjá Hebreabréfið 13:8; Mormón 9:9). Guð elskar börn sín á okkar tíma, eins mikið og hann elskaði börn sín til forna, og vegna þess að hann elskar börn sín, gerir hann nú það sem hann gerði þá. Hann merkir jarðsprengjusvæði jarðlífsins með boðorðum til að halda okkur á örugga veginum; spámenn láta viðvörunarröddina hljóma þegar þeir sjá hættur fram undan; og prestdæmissáttmála sem tengja okkur örugglega Guði.
Þegar við setjum trú okkar á frelsarann og treystum honum, mun hann leiða okkur örugglega heim með hinni lágværu rödd heilags anda; með fornum og nútíma ritningum; með röddum nútíma spámanna, sjáenda og opinberara; og með hinu djúpa sambandi við sig og föður okkar á himnum, sem helgiathafnir og sáttmálar musterisins gera mögulegt.
Hvergi annars staðar er eins mikið af leiðsögn og handleiðslu, öryggi, vernd, líkn, huggun og von á Krist, en hér í hinu endurreista fagnaðarerindi Jesú Krists og í hans endurreistu kirkju.