Líahóna
Drottinn mun leiða mig
Líahóna janúar 2026


„Drottinn mun leiða mig,“ Líahóna, jan. 2026.

Frá Síðari daga heilögum

Drottinn mun leiða mig

Mér hefur lærst af trú, hlýðni, þolinmæði og bænum, að ég þarf ekki að óttast framtíðina.

myndskreyting af höfundi

Myndskreyting: Allen Garns

Ég ólst upp við söng og var umkringd tónlist. Draumur minn sem barn var að verða atvinnusöngvari. Ég vann meira að segja nokkrar söngkeppnir. Á einhverjum tímapunkti í lífi mínu fann ég fyrir tómarúmi þegar ég hugsaði um þann tilgang sem Guð hafði fyrir mig, utan viðurkenningar og hróss annarra.

Að hafa fagnaðarerindi Jesú Krists í auknum mæli til staðar í lífi mínu, hefur hjálpað mér að hafa trú á óvissutímum. Það hefur líka hjálpað mér að skilja að himneskur faðir vildi að ég notaði hæfileikann sem hann gaf mér til að komast nær honum og vegsama hann.

Þótt ég gæfi drauminn upp á bátinn, fannst mér að ég ætti að halda áfram að syngja og læra tónlist.

Þegar ég var 25 ára hafði ég lokið námi í arkitektúr og hafði einnig lært gegnum BYU–Pathway Worldwide og Brigham Young-háskóla – Idaho, sem hjálpaði mér að bæta hæfni mína til að tala ensku.

Þá gerðist svolítið dásamlegt.

Ég fékk boð um að vera tónlistartrúboði sem hluti af heimslægri þátttakendaáætlun The Tabernacle Choir. Ég vissi það ekki, en allt sem ég hafði gert í nokkur ár hafði búið mig undir þessa stund. Boðið var svar við bænum mínum og þrám. Himneskur faðir þekkir endinn frá upphafinu og gerði mér mögulegt að syngja með Tabernacle Choir at Temple Square á aðalráðstefnunni í október 2024.

Gegnum þessa reynslu get ég vitnað um kraft þess að vera leidd af heilögum anda, sýna þolinmæði og treysta því að Guð hafi tilgang, þótt við skiljum ekki þann tilgang. Eins og okkur hefur verið lofað: „Leiðin næst okkur er ef til vill ekki alltaf skýr, en við getum fylgt frelsaranum í trú á að ferð okkar ljúki dásamlega og sigursællega, vegna þess að hann mun leiða okkur örugglega þangað sem við þurfum að vera.“

Þau ykkar sem leitið vegarins framundan, vitið að Drottinn hefur undirbúið nokkuð betra fyrir ykkur en þið fáið ímyndað ykkur. Ef við fylgjum honum, munum við meðtaka það sem hann hefur undirbúið fyrir okkur. Leiðin er kannski ekki augljós og lífið getur verið erfitt, en Drottinn gerir samt kraftaverk fyrir börn sín.

Mér hefur lærst að Drottinn mun leiða mig gegnum trú, hlýðni, þolinmæði og bæn.