Líahóna
Ég fann frið
Líahóna janúar 2026


„Ég fann frið,“ Líahóna, jan. 2026.

Frá Síðari daga heilögum

Ég fann frið

„Eins og sársauki minn væri ekki nægjanlegur,“ hugsaði ég, „þá verð ég nú að spila erfiðan sálm.“

myndskreyting af höndum spilandi á píanó

Myndskreyting: Allen Garns

Þegar ég hlaut tvær kirkjukallanir sem píanóleikari í sömu vikunni, fór ég að hafa áhyggjur af því hvernig ég gæti fundið tíma til að uppfylla aðrar skyldur mínar heima, í vinnu og skóla. Í hjarta mínu var dýpsta þrá mín að þjóna Drottni og færa fólki anda hans á sama tíma og ég ræktaði hæfileika mína. Mér fannst ég þó ekki geta helgað mig nýju köllununum mínum eins og ég hefði viljað.

Vikuna á eftir var afar annasamt hjá fyrirtækinu þar sem ég starfaði. Þar sem mesti hluti starfs míns felst í vélritun, fór mig að verkja í handleggi mína og úlnliði. Ég hafði áhyggjur af því hvort ég gæti spilað á píanó, ef sársaukinn hyrfi ekki.

Á sunnudeginum, þegar ég lék forspilið á píanó kapellunnar, byrjaði mig aftur að verkja í vöðvana. Ég bað snöggvast í hjarta mínu um styrk til að halda áfram að spila.

Meðan á sakramentinu stóð, varð mér ljóst að næsti sálmur var sálmur sem ég hafði ekki spilað í langan tíma. „Eins og sársauki minn væri ekki nægjanlegur,“ hugsaði ég, „þá verð ég nú að spila erfiðan sálm.“ Það var þá sem ég las þessi orð, sem sögðu nákvæmlega það sem ég var að skynja:

Gjör mér kleift að [spila] orð þitt,

gef svo verði Guð ég bið.

Gjör mér kleift að gera allt mitt,

er ég Guðdóms kenni sið.

Þegar ég las fann ég frið. Ég vissi að frelsarinn þekkti sársauka minn. Hann hafði þrátt fyrir allt upplifað hann (sjá Alma 7:11–12). Ég þurfti ekki að takast á við þessa stund einsömul. Ég hafði ekki átt von á því, en ég fann fyrir anda Drottins.

Þegar ég byrjaði að spila, fann ég ekki fyrir sársauka og nóturnar voru kunnuglegar fingrunum. Ég áttaði mig á því að þjónusta mín hafði rutt braut að lækningu og fært mig nær himneskum föður.

Þegar ég hugsa um píanóupplifun mína, þá veit ég að ég spilaði ekki ein. Ég var snortin af krafti og náð Jesú Krists – andlegri upplifun sem varð vegna þess að ég þjónaði honum. Ég veit að hann mun alltaf vera til staðar til að styðja okkur og styrkja, ef við erum fús til að þjóna honum.

Heimildir

  1. Gjör mér kleift að gefa orð þitt,” Hymns, nr. 281; ísl. þýðing til.

  2. Sjá Joy D. Jones, „Fyrir hann,“ aðalráðstefna, október 2018.