Líahóna
Bæn í hjarta mínu
Líahóna janúar 2026


„Bæn í hjarta mínu,“ Líahóna, jan. 2026.

Frá Síðari daga heilögum

Bæn í hjarta mínu

Dagleg leiðsögn móður minnar varðandi bænina hefur gert gæfumuninn í lífi mínu.

mynd af konu að kyssa son sinn

Myndskreyting: Allen Garns

Þegar ég var í grunnskóla rétti móðir mín mér alltaf hádegismatinn minn, kyssti mig á ennið og sagði: „Gerðu þitt besta í dag og mundu að hafa bæn í hjarta.“ Hún sagði það sama á hverjum morgni, allt í gegnum menntaskólann.

„Hafðu bæn í hjarta,“ var reyndar það síðasta sem hún sagði við mig þegar ég fór um borð í flugvél til að fara í tveggja ára trúboð mitt til Flórída. Ég varð svo vanur að heyra þetta orðatiltæki að ég hugsaði ekki mikið um það á uppvaxtarárunum. Ég hélt að hennar kynslóð hefði bara alltaf sagt þetta, eins og: „Eigðu góðan dag.“

Þegar ég var fastatrúboði lærði ég að tala einhverja spænsku er ég þjónaði í Miami, Flórída, í Bandaríkjunum. Ég komst að því að hinir nýju vinir okkar, margir frá Kúbu og Púertó Ríkó, voru alveg eins og mamma. Sérhver fjölskylda sem við heimsóttum sendi okkur burt með svipaða hjartfólgna ósk: „Vaya con Dios“ (farðu með Guði).

Þegar ég loks fór að skilja hvað móðir mín átti við, tók ég að leita leiða til að hafa sannarlega bæn í hjarta mínu. Þegar ég gerði það, varð ég þakklátari fyrir himneskan föður og son hans, Jesú Krist. Ég upplifði aukið úthald á tímum prófrauna og þrenginga. Ég fann aukna elsku til foreldra minna og þakklæti fyrir þær fórnir sem þau höfðu fært fyrir mig.

Dag einn las ég um heimsókn frelsarans til Nefítanna eftir upprisu hans. Á öðrum degi heimsóknar hans „bauð hann lærisveinunum að biðja“. Er þeir báðust fyrir, bað frelsarinn líka og sagði „mikil og undursamleg“ orð. Þegar hann hafði lokið máli sínu, bauð hann mannfjöldanum „að biðja án afláts í hjörtum sínum“ (3. Nefí 19:17, 34; 20:1).

Ein leið til þess að gera það, er að hugsa um bænina sem myndaumgjörð utan um daglegar athafnir okkar. Þessi umgjörð bænar, ásamt elsku og þakklæti, hjálpar okkur að einblína á frelsarann og halda sáttmála okkar.

Ég er þakklátur fyrir daglega leiðsögn móður minnar um að „biðja án afláts“ í hjarta mínu. Það hefur haft mikið að segja í lífi mínu.