2025
Er Jesús raunverulegur?
Júlí 2025


Skrifað af ykkur

Er Jesús raunverulegur?

Telpa situr við borð með mömmu sinni, bróður og systur

Dag einn var ég með systkinum mínum við borðið til að læra ritningarnar með fjölskyldunni. Mamma byrjaði lexíuna í Kom, fylg mér en ég var ekki að fylgjast vel með. Ég var að hugsa um annað: Er Jesús raunverulegur?

Í kirkju og í Barnafélaginu lærðum við að hann væri raunverulegur, en ég hafði ekki persónulega vitneskju um það. Ég íhugaði þetta stöðugt en fann ekki svarið.

Eftir ritningarnámið spurði ég móður mína: „Er Jesús raunverulegur?“

„Góð spurning,“ sagði hún. „Hvernig væri að þú bæðist fyrir vegna þessa?“

„Allt í lagi,“ sagði ég.

Um kvöldið fór ég með bæn og spurði: „Himneskur faðir, er sonur þinn raunverulegur?“ Þá fann ég fyrir mjög hlýrri tilfinningu hið innra. Ég vissi að Guð hafði bænheyrt mig. Eftir það fór ég með þakkarbæn til himnesks föður fyrir að svara mér. Ég veit að hann hlustar á bænir mínar og hann mun líka hlusta á ykkar.

PDF-síða

Myndskreyting: Emily Davis