Læra og vaxa
Við komum til jarðar svo við gætum lært og vaxið og orðið eins og himneskur faðir einhvern daginn (sjá HDP Móse 1:39). Stundum tökum við ákvarðanir sem við erum ekki stolt af. Þegar við syndgum eða gerum mistök, gefst okkur tækifæri til að snúa okkur til Jesú Krists.
Þið getið alltaf vaxið og reynt aftur þegar þið gerið mistök eða takið slæmar ákvarðanir. Himneskur faðir og Jesús Kristur elska ykkur fullkomlega og geta alltaf hjálpað ykkur!
Allir geta iðrast
Að velja að gera eitthvað sem þið vitið að er andstætt boðorðum Guðs, er synd. Himneskur faðir vissi að við myndum öll syndga og taka slæmar ákvarðanir. Þess vegna sendi hann son sinn, Jesú Krist. Hans vegna getum við iðrast, fundið elsku hans og tekið betri ákvarðanir (sjá Enos 1:5–6). Hafið hugfast að Drottinn hefur lofað: „Þeim sem hefur iðrast synda sinna er fyrirgefið, og ég, Drottinn, minnist þeirra ekki lengur“ (Kenning og sáttmálar 58:42).
Læra af mistökum
Mistök eru eitthvað sem þið gerið fyrir slysni. Stundum geta mistök valdið ykkur sorg eða vandræðaleika. En við þurfum ekki að einblína á mistök okkar! Við getum lært af þeim og látið af þeim. Jesús Kristur getur líka hjálpað okkur með þetta.
Myndskreyting: Tatsiana Burgaud