2025
Fyrir eldri börn
Júlí 2025


Fyrir eldri börn

Orð frá ykkur

Brosandi telpa

Ég er glöð þegar ég hjálpa pabba mínum að þjóna öðrum.

Nia L., 10 ára, Hsinchu-sýslu, Taívan

Brosandi drengur

Ég hjálpaði við að slá grasflöt nágranna míns. Ég stóð mig mjög vel. Ég veit að þegar ég legg hart að mér gleður það aðra. Ég veit að himneskur faðir elskar mig!

Ronin F., 10 ára, Utah, Bandaríkjunum

Guðs litríka veröld

Himneskur faðir gaf okkur fallega, litríka veröld. Litið myndina með því að nota vísbendingarnar að neðan. Flettið upp á hverju ritningarversi til að vita á hvaða tölustaf liturinn fer á.

Tapatan

Farið í leik frá Filippseyjum með vini! Teiknið spilaborð eins og það sem er vinstra megin. Hvert ykkar þarf þrjá litla hluti, eins og steina eða smápeninga. Skiptist á að setja hlutinn ykkar í hring. Þegar þeir eru allir komnir á borðið, skuluð þið skiptast á að færa hlutinn ykkar einn hring í hvaða átt sem er. Sá sem fer þrjá hringi í röð vinnur!

Leynihjálpari

Einhver í Barnafélaginu kom bróður og systur Müller á óvart með því að reita illgresi úr garðinum þeirra fyrir þau. En hver var það? Fylgið vísbendingunum til að finna svarið.

  1. Leynihjálparinn er ekki með upprétta hönd.

  2. Leynihjálparinn er með krullað hár.

  3. Leynihjálparinn er ekki í röndóttu.

  4. Leynihjálparinn brosir.

  • Jakob

  • Emelía

  • Lína

  • Felix

  • Tóbías

PDF-síða með verkefnum

Myndskreyting: Brian Briggs