Frá Æðsta forsætisráðinu
Fordæmi langömmu minnar
Tekið úr „Einföld er kenning Jesú Krists,“ aðalráðstefna, október 2024.
Langamma mín, Mary Bommeli, var kostgæfin við að miðla fagnaðarerindi Jesú Krists. Fjölskylda hennar fékk kennslu trúboða í Sviss þegar hún var 24 ára gömul.
Eftir skírn sína, flutti Mary til Þýskalands. Hún fann að hún gat ekki haldið aftur af því að miðla því sem hún hafði lært. Fólk safnaðist saman til að hlusta á hana kenna meðan hún óf teppi.
Mary sagði frá Mormónsbók og vitjun himnesks föður og Jesú Krists til Josephs Smith. Hún kenndi um upprisuna. Hún bar vitni um að fjölskyldur geti verið saman að eilífu.
Að kenna börnum himnesks föður um Jesú Krist, er heilagt verk. Þegar við kennum þeim sem við elskum þessar reglur mun heilagur andi hjálpa okkur að þekkja sannleikann.
Teiknið ættarsögu
Eyring forseti fékk innblástur frá langömmu sinni. Hver í ykkar fjölskyldu hvetur ykkur til að velja rétt? Notið spjöldin hér að neðan til að teikna ættarsögu.
Myndskreyting: Shawna J. C. Tenney